fbpx

Frumkvöðlar kynntu lausnir sem sporna gegn loftslagsvánni

Fjárfestadagur viðskiptahraðalsins Hringiðu hjá KLAK – Icelandic Startups var haldinn hátíðlegur á dögunum en forseti borgarstjórnar, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir hélt kröftugt erindi fyrir hátt í 90 gesti; marga af helstu fjárfestum landsins ásamt öðru áhrifaríku fólki úr viðskiptaheiminum þar sem áhersla var lögð á mikilvægi nýsköpunar. Sprotafyrirtækin Arctic Fibers, Circula, EKKÓ, Flöff – textílvinnsla, Í djúpum, Reklotek, RÓ, SeaGrowth, Visttorg vöktu óskipta athygli gesta fyrir kynningar sínar og skýra sýn á hvaða vandamál tengd umhverfismálum fyrirtækin ætla að leysa.

„Nýsköpun er hluti af sjálfsmynd Reykjavíkur. Sem borg og samfélag stöndum við frammi fyrir fjöldamörgum áskorunum sem krefjast nýrra lausna. Við viljum styðja við góðar hugmyndir sem verða að fyrirtækjum og lausnum morgundagsins. Það er engin spurning að Hringiðu-hraðallinn er frábær viðbót í vistkerfi nýsköpunar í borginni.“ Segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar.

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups talaði um sérstöðu Hringiðu þegar hún opnaði fjárfestadaginn. “Hringiða snýst um nýsköpun sem hefur jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag og hið svokallaða hringrásarhagkerfi. Fyrirtækin sem tóku þátt í Hringiðu í ár eru öll með einum eða öðrum hætti að veita gamla línulega hagkerfinu viðspyrnu. En það er ekki einungis af skyldurækni gagnvart umhverfi og náttúru heldur einnig vegna þess að það felast verðmæt tækifæri í að taka þátt í og móta þá umbyltingu sem er fyrir dyrum, þegar allt hið gamla hagkerfi umbreytist og hringrásarhagkerfið tekur við”.”

Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri fræðslu og kynninga hjá Sorpu var kynnir viðburðarins en hann hefur lengi verið ötull talsmaður sjálfbærni. Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry Capital og Andri Heiðari Kristinsson hjá Frumtak Ventures tóku sér sæti í panel og spurðu frumkvöðlana spjörunum úr.

Bakhjarlar Hringiðu eru Reykjavíkurborg, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Faxaflóahafnir, Terra, Ölgerðin og Samtök iðnaðarins. Samstarfsaðilar Hringiðu eru Rannís, Breið þróunarfélag, Evris, Sjávarklasinn, Grænvangur, Orkuklasinn, Hugverkastofa, F6S og Hringrásarklasinn.

is_ISIcelandic