Hringiða 2026 hófst 7. apríl með öflugri fyrstu viku þar sem áhersla var lögð á kynningar, hópefli og næstu skref í mótun sprotafyrirtækjanna. Sjö teymi taka þátt í hraðlinum í ár og vinna að þróun nýsköpunarlausna með áherslu á hringrásarhagkerfið og sjálfbærni.
Vikan hófst í Grósku þar sem teymin kynntu sig og verkefni sín með lyftukynningum og fengu fyrstu innsýn í uppbyggingu og áherslur hraðalsins hjá KLAK – Icelandic Startups.





Í kjölfarið fór hópurinn í hópefli utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrst var haldið að Hellisheiðarvirkjun þar sem Orka Náttúrunnar og Carbfix tóku á móti þátttakendum. Þar fengu teymin innsýn í jarðvarmavinnslu og kolefnisbindingu og kynntust hvernig nýsköpun er nýtt í orkuiðnaði, auk þess sem þau heimsóttu borholur á svæðinu.



Að því loknu var farið í Laugarás Lagoon og deginum lauk í Hveragerði þar sem þátttakendur kynntu sér nýsköpunarstarfsemi Ölverk Pizza & Brewery og héldu áfram að byggja upp tengsl sín á milli.
Miðvikudagur
Á miðvikudegi fór vinnan við viðskiptamódel af stað af fullum krafti. Fyrirlestur um Lean Canvas lagði grunn að áframhaldandi vinnu og í kjölfarið var farið yfir leiðbeinendakerfi hraðalsins hjá KLAK. Ásthildur Otharsdóttir fjallaði um Startup Boards og mikilvægi góðrar stjórnarsetu í uppbyggingu sprotafyrirtækja.
Deginum lauk með yfirferð á Jobs to Be Done, aðferðafræði sem hjálpar teymum að skilja þarfir og hvata viðskiptavina sinna á dýpri hátt.
Á fimmtudegi fór fram fyrsta vinnustofan í Impact Business Modelling System (IBMS) prógramminu, sem haldin er í samstarfi við Richard Georg Engström. IBMS er aðferðafræði og verkfæri sem gerir frumkvöðlum kleift að skilgreina og meta áhrif lausna sinna á skýran og mælanlegan hátt og nýtist jafnt við stefnumótun, fjármögnun og samskipti við hagaðila.




Upphafið gefur skýra vísbendingu um metnað og gæði þeirra verkefna sem munu þróast áfram á næstu vikum hraðalsins.
Um Hringiðu
Hringiða er sex vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja með grænar lausnir. Markmið Hringiðu er að á Íslandi rísi öflug fyrirtæki sem vinna að grænum lausnum og skapa verðmæt og áhugaverð störf sem skila árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi
Bakhjarlar Hringiðu eru: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Terra, og Samtök iðnaðarins.