fbpx

Hvaða teymi komast alla leið í Startup SuperNova?

Fjölmargar vandaðar umsóknir hafa borist í Startup SuperNova í ár og er loksins komið að því að kynna þátttakendur. Næstkomandi föstudag 22. júlí munu KLAK – Icelandic Startups og Nova nafngreina sprotafyrirtækin í Startup SuperNova við mikla viðhöfn í Gym og Tonic salnum á Kex Hostel. KLAK og Nova hvetja öll til að mæta til að fagna með þátttakendum en athöfnin hefst kl. 17:00 – 19:00.

Startup SuperNova í ár fór af stað með breyttu sniði við mikinn fögnuð í júní síðastliðinn í hátíðarsal Grósku í þriggja daga Masterclass sem var ætlaður öllum sprotafyrirtækjum sem höfðu áhuga á því að taka þátt í Startup SuperNova. Eftir Masterclassinn þurftu teymin að skila inn 18 mánaða aðgerðarplani ásamt hefðbundinni umsókn í sjálfan hraðalinn sem hefst þann 3. ágúst. Þá tekur við fimm vikna prógram þar sem unnið verður að gerð viðskipta­áætl­ana, markaðssetn­ingu, vöruþróun svo eitthvað sé nefnt og fundir með mentorum sem fylgja sprotafyrirtækjunum út í gegnum hraðalinn. Að auki býðst aðgangur að fullbúinni vinnuaðstöðu meðan á hraðlinum stendur í höfuðstöðvum KLAK í Grósku.

Startup SuperNova hefur verið gríðarlega góður stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki og einstakur vettvangur fyrir þróun nýsköpunarverkefna rótgrónari sprotafyrirtækja. Hraðallinn er samstarfsverkefni KLAK – Icelandic Startups og Nova þar sem leitast er við að byggja upp viðskiptalausnir ætlaðar alþjóðamarkaði með sannreyndri aðferðafræði og áralangri reynslu KLAK – Icelandic Startups af stuðningi við frumkvöðla og sprotafyrirtæki. 

Startup SuperNova lýkur með glæsilegum fjárfestadegi 9. september.  

is_ISIcelandic