Loftslagssamtal með nýsköpunarsamfélaginu

Reykjavíkurborg, nýsköpunarsamfélagið og frumkvöðlar sameinuðu krafta í Grósku til að ræða hvernig við náum markmiðum um kolefnishlutlausa höfuðborg 2030. Á fundinum komu fram fjölbreyttar lausnir og hugmyndir frá öflugum aðilum í vistkerfinu – allt frá Hringiðu og Fab Lab til háskólasamfélagsins og stærstu viðburða nýsköpunar á Íslandi. Þetta loftslagssamtal sýnir hversu öflugt samfélag skapandi hugmynda og frumkvöðlastarfs er orðið – og hversu mikilvæg ný tækifæri til samstarfs eru fyrir þá sem vilja taka þátt í að móta grænni framtíð.

Viðburður í Grósku þar sem kynntur er loftslagsborgarsamningur Reykjavíkurborgar fyrir nýsköpunarsamfélaginu í borginni.

Hringiða er viðskiptahraðall á vegum KLAK – Icelandic Startups sem styður við sprotafyrirtæki sem þróa grænar lausnir og sjálfbær verkefni. Markmið hraðalsins er að efla nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærari framtíð og skapa umhverfi þar sem hugmyndir geta þróast í öflug fyrirtæki.

Bakhjarlar Hringiðu eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Terra, og Samtök iðnaðarins.

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.