Taugin er hugbúnaður sem aðstoðar meðferðaraðila við greiningu á undirtegundum heilabilunar og annari skerðingu á hugrænni færni. Taugin samþættir sérfræðiþekkingu og gagnadrifna aðferðafræði við úrvinnslu taugasálfræðigagna ásamt öðrum sjúkraskrárgögnum. Niðurstöður eru settar fram á bæði á myndrænu og tölulegu formi sem hægt er að taka út í skýrsluformi og í formi sjálfvirkrar nótu í sjúkraskrárkerfinu. Áhersla lausnarinnar er á gæði heilbrigðisþjónustu en margföldun á skilvirkni þjónustunnar er skemmtileg hliðarverkun.