Tíu framsækin teymi valin í Startup SuperNova 2026

Hraðallinn styður við þróun tæknilausna með mikla vaxtarmöguleika á alþjóðamörkuðum í samstarfi KLAK – Icelandic Startups, Nova og Huawei með stuðningi frá Grósku.

Tíu efnileg teymi hafa verið valin til þátttöku í Startup SuperNova 2026, sex vikna viðskiptahraðli sem miðar að því að hraða þróun verkefna og undirbúa þau fyrir alþjóðlegan vöxt. Hópurinn í ár endurspeglar mikla breidd í íslenskri nýsköpun, allt frá gervigreind og líftækni yfir í leikjaiðnað og flugtækni.

„Við höfum sjaldan séð jafn sterkan hóp umsækjenda og í ár,“ segir Magnús Daði Eyjólfsson, verkefnastjóri Startup SuperNova hjá KLAK – Icelandic Startups. Hann bendir á að metfjöldi umsókna hafi borist sem leiddi til harðrar samkeppni. „Það sem stendur upp úr er ekki aðeins gæði hugmyndanna heldur einnig metnaður teymanna, djúp þekking á þeim vandamálum sem þau eru að leysa og skýr sýn á alþjóðlega markaði.“

Teymin hófu vegferð sína í Höfuðstöðinni þar sem þau kynntu hugmyndir sínar í fyrsta sinn. Næstu sex vikur taka þau þátt í hnitmiðaðri dagskrá sem byggir á alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði. Þau fá aðgang að vinnustofum, handleiðslu reynslumikilla mentora og dýrmætu tengslaneti sérfræðinga úr íslensku nýsköpunarumhverfi.

Þau teymi sem taka þátt í ár eru:

  • Cirtuic: Opinn, gervigreindarmiðaður PCB-hönnunarvettvangur.
  • Comenius: Gervigreindarknúið námsumsjónarkerfi sem léttir á stjórnsýslubyrði kennara.
  • ELORA: Sjálfvirknivæddar rafálagsgreiningar fyrir verkfræðiteymi í fluggeiranum.
  • FreightFlow: Stafrænt fraktflutningakerfi sem eykur skilvirkni í inn- og útflutningi.
  • Hrím Bioworks: Líftæknifyrirtæki sem skapar lausnir úr ensímum fyrir kaldar aðstæður.
  • MAGNEA: Gervigreind og gagnadrifin verðlagning fyrir sjávarútveginn.
  • Ogma: Heilbrigðistækni sem styður við börn með málþroskaröskun með gervigreind.
  • Saman: Íslenskur leikjavettvangur sem breytir stofunni í spilakvöld.
  • Sinope: Einfaldar öryggisúttektir og staðlavinnu fyrir sprotafyrirtæki með gervigreind.
  • Strux: Gervigreind sem rýnir byggingarleyfisgögn og aðstoðar arkitekta við umsóknir.

Þróunarferlinu lýkur með fjárfestadegi Startup SuperNova, þar sem teymin kynna lausnir sínar fyrir fjárfestum, samstarfsaðilum og lykilaðilum í íslensku atvinnulífi. Með þessu áframhaldandi samstarfi leggur KLAK – Icelandic Startups áherslu á að efla íslenskt hugvit og styðja við frumkvöðla á öllum stigum þeirra vegferðar.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.