Sykursalurinn, Gróska

Framtíðin í fjarskiptum

7. maí | 08:30 - 10:00
dagar
klukkustundir
mínútur
Viðburður er liðinn

KLAK Icelandic Startups, Stjórnvísi, Huawei og Nova bjóða til viðburðar í Grósku þar sem hin stafræna framtíð verður tekin til skoðunar — með áherslu á nýsköpun í fjarskiptum og hvaða hlutverki fjarskiptin munu gegna í stöðugri þróun gervigreindarinnar og snjallvæðingu umhverfisins í kringum okkur.

Hvenær? 7. maí 2026, kl. 08:30–10:00

Hvar? Sykursalurinn, Gróska

Dagskrá

08:30 — Húsið opnar

08:40 — Beatriz, Huawei: Framtíðarsýn fjarskipta og gervigreindar. Farið verður yfir TechVision framtíðarsýn Huawei, þróun gervigreindar og hvernig fjarskiptainnviðir styðja við næstu kynslóð tæknilausna.

09:00 — Rafal, Nova: IoT og innviðir – staðan í dag og hvert við stefnum. Raunveruleg staða hlutanetsins (IoT) á Íslandi, hvernig IoT er að móta innviði eins og samgöngur, veitur og borgarumhverfi – og hvað er framundan.

09:15 — KLAK / Startup SuperNova: Nýsköpun í framkvæmd. Kynning á Startup SuperNova hraðlinum og hvernig hann styður við þróun og innleiðingu nýrra lausna á sviði stafrænnar nýsköpunar.

09:30 — Atlas: Stafrænt fullveldi Íslands. Hvers vegna stafrænt fullveldi skiptir sífellt meira máli og hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skrefin í átt að öruggari og sjálfbærari stafrænum rekstri.

09:45 — Spurningar og umræður

Viðburðurinn

Tengdir viðburðir

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.