Gróska, við Gróðurvegginn á 1. hæð

Prosecco & Pitch — Hringiða 2026

6. maí | 17:00 - 19:00
dagar
klukkustundir
mínútur
Viðburður er liðinn

Þann 6. maí býður KLAK – Icelandic Startups upp á Prosecco & Pitch í Grósku! 🎉🥂

Viðburðurinn er lifandi og skemmtilegur þar sem sprotafyrirtækin sem taka þátt í viðskiptahraðlinum Hringiðu kynna verkefni sín fyrir gestum. Sprotarnir eiga það allir sameiginlegt að leggja sitt af mörkum til að takast á við áskoranir sem tengjast hringrásarhagkerfinu og umhverfismálum.

Við hvetjum því öll áhugasöm um nýsköpun, sjálfbærni og framtíðina til að mæta, mingla og styðja við sprotana. Boðið verður upp á búbblur og léttar veitingar 🌟

Við hlökkum til að sjá ykkur við Gróðurvegginn á 1. hæð í Grósku! 🌎

Hvenær? 6. maí 2026, kl. 17:00–19:00

Hvar? Gróska, við Gróðurvegginn á 1. hæð

Fyrirtækin í Hringiðu 2026

🌿 Araxni — framleiðir köngulóarsilki með hjálp líftækni sem kemur í stað plasts í sjávarútvegi, textíliðnaði og fleiri geirum, með það að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum.

🌿 E-LÍSA — hugbúnaðarlausn sem dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og hámarkar orkuvinnslu með því að bæta afköst borhola á markvissan hátt.

🌿 IORDEN — sjálfvirk gæðastýringarlausn fyrir smærri matvælaframleiðendur sem eykur gagnsæi, einfaldar ferla og dregur úr villum með samþættingu vél- og hugbúnaðar.

🌿 Loopable — umbreytir ónýtum textíl í hágæða prjónagarn og fyllingarefni, og vinnur þannig gegn textílsóun með því að skapa ný verðmæti úr úrgangi.

🌿 Ratatag — tengir eigendur og finnendur týndra muna með QR-kóðakerfi sem lengir líftíma þeirra, stuðlar að betri nýtingu á eigum fólks og minnkar neyslu.

🌿 Soil Lagoon — vinnur að uppbyggingu fyrstu jarðvegshreinsistöðvar Íslands sem nýtir jarðhitavatn til að hreinsa mengaðan jarðveg innanlands.

🌿 Thermal Beets Records — framleiðir sjálfbærar vínylplötur úr sykurrófum í stað PVC, með það að markmiði að gera tónlistarútgáfu umhverfisvænni.

Bakhjarlar Hringiðu eru Terra, Faxaflóahafnir, Reykjavíkurborg, Samtök Iðnaðarins og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Viðburðurinn

Tengdir viðburðir

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.