Terra endurnýjar stuðning við Hringiðu – styrkir áfram hringrásar- og umhverfisnýsköpun

Terra og KLAK – Icelandic Startups hafa undirritað nýjan samstarfssamning þar sem Terra endurnýjar stuðning sinn við nýsköpunarhraðalinn Hringiðu. Með samningnum staðfestir Terra enn á ný trú sína á mikilvægi hringrásarhagkerfis og lausna sem draga úr sóun og hámarka nýtingu auðlinda.

Við hjá KLAK fögnum því að hafa Terra áfram með okkur í liði og sjáum þetta sem skýrt trausts til þeirra frumkvöðla sem taka þátt í Hringiðu. Stuðningur Terra skiptir lykilmáli við að skapa öfluga umgjörð um sprotafyrirtæki sem vinna að nýjum lausnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála.

Hringiða er sérhæfður hraðall fyrir verkefni og sprota sem vinna að grænum lausnum og sjálfbærum viðskiptalíkönum. Með samstarfi KLAK og Terra fá teymi í hraðlinum aðgang að sérfræðiþekkingu, tengslaneti og handleiðslu sem getur flýtt fyrir vexti þeirra og aukið líkur á árangri.

Nýr samningur við Terra styrkir enn frekar vistkerfi nýsköpunar á Íslandi og undirstrikar mikilvægi þess að atvinnulífið standi með frumkvöðlum sem vilja þróa lausnir sem nýtast bæði fyrirtækjum og samfélaginu í heild.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.