Ókeypis 30 mínútna ráðgjafartímar fyrir KLAK Alumni – 20. október 2026
Office hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað fundi með reyndum sérfræðingum, sér að kostnaðarlausu. Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra. Dæmi um efni eru lagaleg málefni, hugverkaréttur og mannauðsmál.
Þann 20. október munu sérfræðingar frá KPMG bjóða upp á Office Hours fundi í Grósku.
Sérfræðingar frá KPMG veita stofnendum nýsköpunarfyrirtækja ráðgjöf um kauprétti og starfsmannatengd mál. Meðal þess sem hægt verður að fá ráðgjöf um eru kaupréttir og skattlagning þeirra, launamál og reglur um reiknað endurgjald, áhættur tengdar verktakasamningum ásamt ráðningum erlendra starfsmanna og notkun Employer of Record (EOR) þjónustu.
KPMG hefur í meira en áratug verið traustur bakhjarl nýsköpunarfyrirtækja og virkur þátttakandi í uppbyggingu nýsköpunarumhverfisins á Íslandi. KPMG veitir nýsköpunarfyrirtækjum, fjárfestum og öðrum sem tengjast nýsköpun fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði endurskoðunar og reikningsskila, lögfræði og skattamála auk ráðgjafaþjónustu.