Ókeypis 30 mínútna ráðgjafartímar fyrir KLAK Alumni – 30. október 2026
Office hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað fundi með reyndum sérfræðingum, sér að kostnaðarlausu. Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra. Dæmi um efni eru lagaleg málefni, hugverkaréttur og mannauðsmál.
Þann 30. október munu sérfræðingar úr ráðgjafateymi Hugverkastofunnar bjóða upp á Office Hours fundi í Grósku.
Ráðgjafateymi Hugverkastofunnar býður stofnendum nýsköpunarfyrirtækja hugverkaráðgjöf. Boðið verður upp á ráðgjöf um vörumerki, einkaleyfi og hönnun.
Hugverkastofan fer með málefni hugverka á Íslandi, miðlar þekkingu og er í virku samtali við samfélagið um málefni tengd hugverkarétti.
Hugverkastofan er skráningaraðili hugverkaréttinda á Íslandi. Ráðgjafateymi Hugverkastofunnar býr yfir viðamikilli sérþekkingu á sviði hugverkaréttar sem gagnast getur þeim sem starfa við nýsköpun og í atvinnulífinu. Teymið getur meðal annars bent á þær skráningarleiðir sem í boði eru hér á landi og erlendis og hvaða gagnagrunnar vista upplýsingar um skráð hugverk.
- Dagsetning: 30. október 2026
- Tími: 9:30-12:00
- Staðsetning: KLAK, Gróska, Kristínargötu 1, Reykjavík
- Þátttaka: Ókeypis, en skráning er nauðsynleg