Ókeypis 30 mínútna ráðgjafartímar – 18. nóvember 2026
Hluthafasamkomulög og fjármögnun sprotafyrirtækja
Office hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað fundi með reyndum sérfræðingum, sér að kostnaðarlausu. Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra. Dæmi um efni eru lagaleg málefni, hugverkaréttur og mannauðsmál.
Þann 18. nóvember munu sérfræðingar frá ADVEL bjóða upp á Office Hours ráðgjafarfundi í Grósku
Inga Lilja Ásgeirsdóttir og Vilhjálmur Hrafn Stefánsson, lögmenn hjá ADVEL, munu hitta frumkvöðla og ræða ýmis álitaefni tengd hluthafasamkomulögum og fjármögnun sprotafyrirtækja. Meðal álitaefna sem hægt er að bera upp á fundinum eru gerð hluthafasamkomulaga, réttindi og skyldur hluthafa, forkaups- og innlausnarréttur, útgáfa nýrra hluta og breytanlegra skuldabréfa ásamt öðrum fjármögnunarleiðum sem standa sprotafyrirtækjum til boða.
Hjá ADVEL lögmönnum starfa sérfræðingar á sviði persónuverndar, auk annarra réttarsviða sem tengjast lögfræðiráðgjöf til fyrirtækja. ADVEL hefur um árabil stutt við frumkvöðlastarf í landinu í samvinnu við KLAK til fjölda ára m.a. með fyrirlestrum og ráðgjöf til frumkvöðla.
- Dagsetning: 18. Nóvember 2026
- Tími: 9:00-12:30
- Staðsetning: KLAK, Gróska, Kristínargötu 1, Reykjavík
- Þátttaka: Ókeypis, en skráning er nauðsynleg