fbpx

KLAK aðstoðar við umsóknir fyrir styrki hjá Íslandsbanka

Þann 11. október nk. verður opinn dagur hjá KLAK í Grósku á 1. hæð fyrir umsækjendur sem vilja sækja styrki úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka og vilja nýta sér aðstoð við umsóknarferlið.

Umsóknarfrestur er frá 27. september – 1. nóvember 2023.

Íslandsbanki vill vera hreyfiafl til góðra verka í samfélaginu og veitir þess vegna styrki til verkefna sem styðja við þau fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur valið að leggja sérstaka áherslu á. 


Umsækjendur eru hvattir til að líta sérstaklega til undirmarkmiðanna og tilgreina tengingar við þau í umsóknarferlinu ásamt því að kynna sér vel almenn skilyrði sjóðsins.

Frumkvöðlasjóður • Íslandsbanki (islandsbanki.is)

is_ISIcelandic