Office Hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað 30 mínútna fundi með reyndum sérfræðingum úr hópi mentora eða frá samstarfsaðilum KLAK VMS, sér að kostnaðarlausu.
Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra.
Dæmi um efni eru;
- Lagaleg málefni
- Hugverkaréttur
- Mannauðsmál
- ofl
KPMG hefur í meira en áratug verið traustur bakhjarl nýsköpunarfyrirtækja og virkur þátttakandi í uppbyggingu nýsköpunarumhverfisins á Íslandi.
Aron Ás Kjartansson, lögfræðingur hjá KPMG Law, og Kjartan Ottósson frá fyrirtækjaráðgjöf KPMG veita ráðgjöf til nýsköpunarfélaga og svara spurningum um helstu lögfræðileg álitaefni sem upp kunna að koma.