fbpx

Fjölmennasta vísindaferð Gulleggsins í Grósku

Yfir 700 háskólanemar mættu í vísindaferð Gulleggsins í Grósku og varð því fjölmennasta vísindaferð landsins til þessa, að því best er vitað. Gulleggið, stærsta og elsta frumkvöðlakeppni landsins í umsjá KLAK – Icelandic Startups fer nú fram í 16. skiptið en meðal þekktra fyrirtækja sem tekið hafa sín fyrstu skref í Gullegginu má nefna Controlant, Meniga, PayAnalytics og Solid Clouds. 

Aðalbakhjarl Gulleggsins er Landsbankinn sem hefur tekið þátt í verkefninu frá upphafi en meðal annarra bakhjarla eru Reykjavíkurborg, HVIN, Marel, Origo, Advania, KPMG, Frumtak, Controlant, Iðunn, Rarik, Ölgerðin, Vörður, Hugverkastofa, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður auk Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Blásið var í stóru lúðrana þegar íburðarmiklir og áberandi kynningarbásar bakhjarla voru settir upp á göngugötu Grósku en þegar mest lét var erfitt að fóta sig milli bása vegna háskólanema. 

Færri komust að en vildu í hátíðarsal Grósku þegar Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK setti vísindaferð Gulleggsins fyrir troðfullum sal og setti þar með tóninn fyrir það sem koma skal í Gullegginu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og “ráðherra Gulleggsins” fór með hvetjandi erindi um nýsköpun við mikinn fögnuð viðstaddra.Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar og fulltrúar frá Marel, Sveinn Kjarval, verkefnastjóri og Hildur Einarsdóttir, automation manager, fluttu uppörvandi erindi um það allra helsta sem viðkemur frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun.

Stjörnutvíeykið í Úlfur Úlfur, Helgi Sæmundur Guðmundsson og Arnar Freyr Frostason tróðu upp við hinn umtalaða Gróðurvegg Grósku og gerðu allt vitlaust þegar þeir tóku lagið eftir setningu vísindaferð Gulleggsins.

is_ISIcelandic