Klúðurkvöld Startup SuperNova 2026: Fögnum mistökum og opnum fyrir umsóknir í hraðalinn

Í kvöld koma frumkvöðlar, fjárfestar og áhugafólk um nýsköpun saman á Klúðurkvöldi Startup SuperNova í húsnæði Nova við Lágmúla 9. Þar verður kastljósinu beint að því sem oft er minna rætt; mistökunum – og þeim ómetanlega lærdómi sem fylgir því að taka áhættu og prófa sig áfram.

Á sviðinu stíga reynsluboltar úr íslenska sprotaheiminum fram og deila sínum stærstu klúðrum, hvað fór úrskeiðis og – ekki síður mikilvægt – hvað þau tóku með sér áfram inn í næstu skref á frumkvöðlaferðalaginu. Markmiðið er að skapa öruggt rými þar sem er hægt að hlægja saman, spegla eigin reynslu og fara heim með nýja sýn á það hversu eðlilegur og verðmætur hluti mistök eru af allri nýsköpun.

Klúðurkvöldið markar jafnframt formlega opnun umsókna í Superclass Startup SuperNova 2026, hraðalinn sem KLAK – Icelandic Startups stendur að í samstarfi við Nova og Huawei með stuðningi frá Grósku. Þar fá upprennandi sprotar tækifæri til að fá handleiðslu, tengslanet, fræðslu og verkfæri til að hraða vexti og prófa viðskiptahugmyndir sínar á öruggan og uppbyggilegan hátt.

Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á frumkvöðlastarfi og nýsköpun – hvort sem þú ert nú þegar með sprota á teikniborðinu, í fullum rekstri eða einfaldlega forvitin um heim nýsköpunar. Þetta er kjörið tækifæri til að hitta fólk úr vistkerfinu, fá innblástur og kynna sér hvernig Startup SuperNova getur stutt við næstu skref.

Klúðurkvöld Startup SuperNova 2026 fer fram 13. maí kl. 19:00 – 21:00 í Nova, Lágmúla 9. Við hvetjum alla sem brenna fyrir nýsköpun, hugviti og hugrekki til að mæta og taka þátt í umræðunni.

Umsóknir í Superclass Startup SuperNova 2026 opna samhliða viðburðinum á heimasíðu Startup SuperNova.

Klúðrar:

Eyþór Máni Steinarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Hopp

Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Keeps

Soffía Kristín Þórðardóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri PaxFlow

Steinn Arnar Kjartansson, stofnandi, fjármála- og gagnastjóri Humble.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.