fbpx

Lady Lava fór á kostum á Klúðurkvöldi Startup SuperNova

Fullt var út að dyrum í verslun Nova á Klúðurkvöldi Startup SuperNova en viðburðurinn var hluti af Nýsköpunarvikunni. Frægir reynsluboltar úr nýsköpunarumhverfinu deildu fyndnum sögum af mistökum og klúðri við uppbyggingu sprotafyrirtækja sinna. 

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups og Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova opnuðu viðburðinn við glimrandi lófaklapp. Tilefnið var að opnað hefur verið fyrir umsóknir í Superclass Startup SuperNova á vefsíðu viðskiptahraðalsins. Þetta er í þriðja sinn sem Klúðurkvöld er haldið í tengslum við Startup Supernova hraðalinn en slíkir viðburðir eru vel þekktir erlendis. 

Klúðursögur reynsluboltanna kitluðu hláturtaugarnar í þétt setnum salnum en Finnur Pind stofnandi og framkvæmdastjóri Treble Technologies gaf tóninn þegar hann steig fyrstur á svið og sagði skondnar sögur af uppbyggingu Treble. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Kara Connect tók við og fór á kostum þegar hún sagði frá ýmsum gömlum klúðrum og einu glænýju. Georg Lúðvíksson, meðstofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Meniga tók þá við hljóðnemanum og fékk alla viðstadda til að leggja við hlustir þegar saga hans var sögð.

Ragnhildur Ágústsdóttir, meðstofnandi Lava Show, eða Lady Lava eins og margir þekkja hana sló á létta strengi þegar hún sagði frá rússíbanareiðinni við uppbyggingu fyrirtækisins. Saga Lava Show hófst árið 2016 í stærstu frumkvöðlakeppni Íslands Gullegginu og fyrirtækið tók seinna sama ár þátt í Startup Reykjavík viðskiptahraðlinum.

Góð mistök geta sannarlega verið gulls ígildi. Tilgangurinn með Klúðurkvöldinu er að auka umburðarlyndi fyrir mistökum. Ef frumkvöðlar þora ekki að gera mistök verður engin nýsköpun til. Það var gaman að sjá hversu vel reynsluboltarnir náðu til allra í salnum. Þess má geta nokkur þeirra hafa farið í gegnum viðskiptahraðla og stærstu frumkvöðlakeppni Íslands, Gulleggið sem KLAK hefur umsjón með. 

Við erum búin að opna fyrir umsóknir í Superclass Startup SuperNova sem er tveggja daga ókeypis hraðnámskeið í nýsköpun. Það er krafa að sækja Superclass vinnustofurnar til að geta sótt um í Startup Supernova hraðalinn. Við hlökkum til að sjá sem flesta frumkvöðla í Grósku 6.-7. júní.” Segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

Startup SuperNova er samstarfsverkefni KLAK – Icelandic Startups, Nova og Huawei með stuðningi frá Grósku hugmyndahúsi þar sem leitast er við að byggja upp viðskiptalausnir ætlaðar alþjóðamarkaði.

is_ISIcelandic