fbpx

Lokadagur Startup Tourism 2024

Startup Tourism 2024 lýkur með glæsilegri dagskrá í hádeginu miðvikudaginn 27. nóvember.

Viðburðurinn verður í beinu streymi þar sem níu framsækin sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu kynna verkefni sín og afrakstur síðustu vikna.

Lokaviðburðurinn er sannkölluð uppskeruhátíð sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Dagskrá:

⏰ 11:45 – Útsending hefst
🎤 Opnunarávörp:

-Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningar-, viðskipta- og ferðamálaráðherra
-Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups

Kynningar frá Startup Tourism teymunum:

  • Iceland Cover
    Verkefnið snýst um það að gefa erlendum ferðamönnum færi á að leigja sér góðan útivistarfatnað á hagkvæmu verði á meðan á dvöl sinni stendur. 
  • Alheimur
    Alheimur er vísindasetur sem inniheldur gagnvirkt og áhugavert efni um eðli vísinda og tækni. Í Alheimi er skemmtun og fræðsla samþætt svo upplifun verður einstök.
  • PickMeUp
    PMU er sérsniðinn hugbúnaður fyrir ferðaþjónustu sem eykur utanumhald í skutlþjónustu fyrir ferðamenn. Notandinn getur nýtt sér leiðarvísi sem auðveldar honum að finna sína stoppistöð og tryggir að hann sé á réttum stað. Innstimplunin sýnir fram á að kúnnin hafi verið mættur á réttum tíma og réttum stað ef svo skyldi að rútan færi án hans.
  • Guyde
    Guyde er raddstýrt leiðsöguapp sem, með hjálp spunagreindar og talgervilstækni, veitir ferðalöngum á einka- og bílaleigubílum félagsskap og leiðsögn í samræmi við staðsetningu þeirra og persónulegar óskir.
  • NordTemp
    Norræn atvinnumiðstöð sem tengir fyrirtæki í ferðaþjónustu við hæft starfsfólk. Vettvangurinn  straumlínulagar ráðningarferli fyrir störf þar sem vinnutími og vaktir eru sveigjanlegar og tryggir að fyrirtæki geti fljótt fundið hæft starfsfólk þegar þau þurfa mest á því að halda.
  • HotSheep
    HotSheep einbeitir sér að svokölluðum last-minute bókunum á upplifunum. Fyllt er upp í ferðir með því að bjóða hvetjandi afslætti þegar það er stutt í brottför. Með þessu fær ferðaskipuleggjandinn betri nýtingu og ferðamaðurinn fær betri verð.
  • Adventure Tours
    Adventure Tours áforma að gera nýjan áfangastað á Suðurlandi, nánar tiltekið Reynisfjall við Vík í Mýrdal. Ætlunin er að bæta aðgengi og öryggi með merkingum og stikum fyrir hjóla og göngufólk. Bæta aðgengi með rútuferðum upp á fjall. (líka fyrir hreyfihamlaða) Bæta öryggi með því að hafa áningarstað upp á fjalli með salerni og veitingum.
  • Snotra Sustainability
    Snotra er að þróa gervigreindarlausn byggða á SaaS til að styrkja ferðaþjónustuna, tryggja samræmi við sjálfbærnistefnu ESB og iðnaðarstaðla með gagnasöfnun og dreifðri, gagnvirkri þjálfun sem miðar að því að auka heildarþátttöku í sjálfbærni í ferðaþjónustu.
  • True Arctic Travel
    True Arctic Travel ferðaþjónusta miðar að því að ferðafólk geti notið Artískrar náttúru (Norðurslóða) og ferðalaga þar með sjálfbærum hætti og án þess að skapa átroðning á þeim stöðum þar sem ferðast er um. 

13:15 – Dagskrá lýkur

Fundarstjóri verður Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir

Bein útsending