Norðurlöndin vinna saman að því að kortleggja og styrkja nýsköpunarvistkerfi sín

KLAK – Icelandic Startups tekur þátt í nýju samstarfsverkefni ásamt fimm öðrum samtökum á Norðurlöndum og við Eystrasalt. Verkefnið, Nordic Innovation Ecosystem Mobilisation, er fjármagnað af Nordic Innovation og hefur það að markmiði að kortleggja, bera saman og styrkja vistkerfi sprotafyrirtækja á svæðinu.

Sérstaða verkefnisins liggur í því að greiningin er unnin af samtökum sem starfa innan vistkerfanna. Ekki utanaðkomandi ráðgjöfum, heldur aðilum sem hafa margra ára þekkingu og tengsl inn í stjórnsýsluna, háskólasamfélagið, fjármálageirann og atvinnulífið. Hver þátttakandi teflir fram sínum styrkleikum:

  • SISP (Svíþjóð): Norræn samhæfing og heildar verkefnastjórnun, kerfisleg yfirsýn og þekking á stefnumótun..
  • Smart Innovation Norway (Noregur): Samningsleg ábyrgð, fjármálastjórnun og samskipti við Nordic Innovation.
  • TechBBQ (Danmörk): Bein tengsl inn í samfélag sprota, vaxtarfyrirtækja, fjárfesta, stórfyrirtækja og alþjóðlegra nýsköpunaraðila.
  • Maria 01 (Finnland): Stærsta sprotamiðstöð Norðurlanda, sterkt alþjóðlegt tengslanet og reynsla af því að leiða saman sprota, fjárfesta og atvinnulíf.
  • KLAK – Icelandic Startups (Ísland): Innsýn úr litlu en þéttu vistkerfi þar sem endurgjöf er hröð og alþjóðleg tenging er mikil.
  • Startup Estonia (Eistland): Landsbundin uppbygging sprotavistkerfis, sterk samræming milli opinbera og einkageirans, og djúp reynsla af stafrænni stjórnsýslu, stefnumótun fyrir vaxtarfyrirtæki og aðkomu alþjóðlegra sérfræðinga.

Samsetning hópsins er meðvituð. Í stað þess að kalla til utanaðkomandi ráðgjafa hefur Nordic Innovation fengið til liðs við sig aðila sem eru í hjarta vistkerfanna og það skilar greiningu af öðrum toga.

Nýr greiningarrammi

Í verkefninu er beitt uppfærðu, sprotamiðuðu líkani sem byggir á Quadruple Helix rammanum og er útvíkkað með tveimur hagsmunahópum til viðbótar, eins konar „Hexuple Helix“.  Þetta líkan endurspeglar alla þá aðila sem móta það hvernig sprotafyrirtæki verða til, vaxa og skalast á Norðurlöndum. Hvert land er greint í sex víddum: stefnu og stjórnsýslu, fjármögnun og fjármagni, rannsóknum og þekkingu, stuðningi við nýsköpun, atvinnulífi og stórfyrirtækjum, og sprotum og vaxtarfyrirtækjum. Greiningin nær þannig yfir alla vegferð sprotans, frá upphafsstigi til einhyrnings.

„Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafa hvert sína einstöku styrkleika tengda nýsköpun, en við lítum sjaldan á okkur sem eina heild. Það sem gerir þetta verkefni öðruvísi er að greiningin er unnin af samtökum sem starfa innan þessara vistkerfa dags daglega. Hver þátttakandi hefur djúpa þekkingu á aðstæðum og aðgengi sem engin utanaðkomandi ráðgjöf hefur. Við erum ekki bara að kortleggja norrænt nýsköpunarlandslag – við erum að virkja það,“
segir Ellinor Bokedal, verkefna- og stefnustjóri hjá SISP.

„Samstarf á milli Norðurlandanna er forsenda þess að unnt sé að virkja til fulls þann kraft sem býr í nýsköpunarvistkerfum okkar. Verkefnið stuðlar að því að byggja upp sameiginlegan skilning sem getur eflt bæði einstök ríki og svæðið í heild sinni,“
segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

Niðurstöður kynntar á TechBBQ í ágúst

Afraksturinn verður heildaryfirlit yfir norrænt sprotavistkerfi, kortlagning á kerfislægum eyðum og lykilpunktum til að virkja, sem og forgangsröðuð áætlun um framtíðarsamstarf yfir landamæri og verða niðurstöður kynntar á TechBBQ í Kaupmannahöfn í ágúst. TechBBQ, sem sjálft er hluti af samstarfinu, er ein stærsta tækniráðstefna Norðurlanda fyrir sprota, fjárfesta, stórfyrirtæki og aðra aðila í nýsköpunarvistkerfinu og því kjörinn vettvangur til að miðla niðurstöðum sem eiga að virkja nýsköpunarsamfélag svæðisins.

Nánari upplýsingar: nordicinnovation.org/programs/nordic-innovation-ecosystem-mobilisation

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.