Optise og Humble í TINC hraðlinum

Íslensk sprotafyrirtæki sækja fram á Norðurlöndum og í Kísildalnum

Tvö íslensk sprotafyrirtæki, Optise og Humble, taka nú þátt í TINC hraðlinum, alþjóðlegu vaxtarprógrammi sem tengir norræn teymi við leiðbeinendur, fjárfesta og vistkerfi nýsköpunar í Evrópu og Kísildalnum.

Hraðallinn hófst með kick-off í Osló þar sem teymi frá Optise og Humble hafa þegar fengið að kynnast öflugum leiðbeinendum, fyrirlesurum og öðrum sprotafyrirtækjum af Norðurlöndunum.

„TINC er öflugasti hraðallinn á Norðurlöndunum og einstakt tækifæri fyrir íslensk sprotafyrirtæki. Hjá Optise höfum við sett okkur stór markmið um að umbylta því hvernig B2B fyrirtæki um allan heim hanna og besta vefsíður sínar fyrir meiri sölu, og það er fátt betra en að fá heimsklassa leiðbeinendur með í þá vegferð. Sjálfur hlakka ég mest til að enda ferðina í Kísildalnum og kíkja í bílskúrinn hans Steve Jobs,“

segir Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri Optise.

Steinn Arnar Kjartansson, stofnandi og fjármálastjóri Humble, segir TINC skapa kjöraðstæður til að skerpa á framsögu og undirbúningi fyrir alþjóðlega sókn:

„TINC fór mjög vel af stað og greinilegt að þetta er mjög sterkt og spennandi prógramm. Mikið er um góða mentora og fyrirlesara sem þekkja greinilega vel til í nýsköpunargeiranum, og öll með áherslu á Kísildal sem er frábært. Þetta er góður vettvangur til að þróa framsögu, tengjast fjárfestum og fá að kynnast hvernig er best að undirbúa spjall með fjárfestum. Teymin eru mjög sterk og heilt yfir mjög góður hópur. Við tökum þátt í TINC til að skerpa á samstillingu liðsins og skilaboðum okkar út á við fyrir sókn á erlenda markaði – og það er varla til betri staður til þess en Kísildalur. Það hefur verið draumur okkar lengi að upplifa orkuna og vistkerfið í höfuðborg sprotafyrirtækja í heiminum.“

Með þátttöku Optise og Humble í TINC styrkist tenging íslenskra sprotafyrirtækja við öflugt norrænt og alþjóðlegt vistkerfi nýsköpunar.

Hjá KLAK – Icelandic Startups er lögð áhersla á að styðja íslensk teymi inn í slík prógrömm, þar sem þau geta hraðað vexti sínum, byggt upp öflugt tengslanet og aukið líkur á árangri á erlendum mörkuðum.

KLAK óskar Optise og Humble innilega til hamingju með þátttökuna og hlakkar til að fylgjast með næstu skrefum í Noregi og Kísildalnum.

TINC Silicon Valley er keyrt af Innovation Norway í samstarfi við KLAK – Icelandic Startups, Vinnova og Business Finland. Verkefnið er stutt af Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.