Office Hours með ADVEL

Ókeypis 30 mínútna ráðgjafartímar – 18. nóvember 2026

Hluthafasamkomulög og fjármögnun sprotafyrirtækja

Office hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað fundi með reyndum sérfræðingum, sér að kostnaðarlausu. Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra. Dæmi um efni eru lagaleg málefni, hugverkaréttur og mannauðsmál.
 

Þann 18. nóvember munu sérfræðingar frá ADVEL bjóða upp á Office Hours ráðgjafarfundi í Grósku
 

Inga Lilja Ásgeirsdóttir og Vilhjálmur Hrafn Stefánsson, lögmenn hjá ADVEL, munu hitta frumkvöðla og ræða ýmis álitaefni tengd hluthafasamkomulögum og fjármögnun sprotafyrirtækja. Meðal álitaefna sem hægt er að bera upp á fundinum eru gerð hluthafasamkomulaga, réttindi og skyldur hluthafa, forkaups- og innlausnarréttur, útgáfa nýrra hluta og breytanlegra skuldabréfa ásamt öðrum fjármögnunarleiðum sem standa sprotafyrirtækjum til boða.

Hjá ADVEL lögmönnum starfa sérfræðingar á sviði persónuverndar, auk annarra réttarsviða sem tengjast lögfræðiráðgjöf til fyrirtækja. ADVEL hefur um árabil stutt við frumkvöðlastarf í landinu í samvinnu við KLAK til fjölda ára m.a. með fyrirlestrum og ráðgjöf til frumkvöðla.

  • Dagsetning: 18. Nóvember 2026
  • Tími: 9:00-12:30
  • Staðsetning: KLAK, Gróska, Kristínargötu 1, Reykjavík
  • Þátttaka: Ókeypis, en skráning er nauðsynleg

KLAK VMS er mentoraþjónusta fyrir frumkvöðla, byggð á aðferðafræði MIT Venture Mentoring Service sem þróuð hefur verið í yfir 25 ár við MIT-háskólann í Boston.
Kerfið byggir á trúnaði, teymisvinnu og því að mentorar einbeiti sér að framgangi sprotanna og megi ekki hafa aðra hagsmuni af þátttökunni

Verkefnið er stutt af Háskólanum í Reykjavík, Hugverkastofu, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, ADVEL, Høiberg og KPMG.

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.