fbpx

Sea Growth hlaut Gulleggið 2024

Spennuþrungið andrúmsloftið leyndi sér ekki þegar úrslit Gulleggsins 2024 voru kunngerð. Tilkynnt var um þrjú efstu sætin og vinsælasta teymið að mati almennings. 

Sea Growth hlaut Gulleggið 2024 en þau kynntu hugmyndina að framleiða fiskhrávörur úr fiskfrumum þ.e. svokallaðan vistfisk. Fulltrúi Landsbankans veitti teyminu 1. milljón króna aðalvinning. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti Birgittu G.S. Ásgrímsdóttur, Alexander Schepsky, Martin Uetz og Sigrúnu Guðjónsdóttur verðlaunagrip sem var sérstaklega hannaður af Kamillu Henriau fyrir Gulleggið 2024.

FairGame lenti í öðru sæti en Jóhannes Ólafur Jóhannesson og Jón Levy Guðmundsson setja upplifun barna í fyrsta sæti, með notkun gervigreindar er platformið þjálfað með niðurstöðum leikja og finnur raunverulegan styrkleika liðana svo börnin okkar fái sanngjarnar áskoranir.

Í þriðja sæti lentu Thorexa með fjórmenningunum Þór Tómasarsyni, Indriða Thoroddsen, Bjarna Þór Gíslasyni, Írisi Líf Stefánsdóttur fyrir hugmyndina byggja upp tölvupóstsvar við þeim póstum sem berast út frá fyrri póstum og gögnum fyrirtækisins. Þetta mun stytta skriftíma starfsmanna og líkir eftir þeirra skrifstíl.

Almenningur kaus vinsælasta teymið á vefsíðu Gulleggsins og hlaut teymið Flöff – textílvinnslan þá flottu viðurkenningu. Flöff – textílvinnslan þróar nýja aðferð við að endurnýta ónothæfan textíl innanlands. Með réttum tækjabúnaði er hægt að tæta niður textíl og búa til nýtt efni. Fyrst ætlum við að skoða textílúrgang hjá fyrirtækjum td starfsmannafatnað og koma þeim textíl aftur í hringrás og á sama tíma búa til verðmæti fyrir fyrirtæki.

Vigdís Hafliðadóttir er mörgum Íslendingum vel kunn. Söngkonan, leikkona, grínistinn, leikritahöfundurinn var kynnir á Gullegginu 2024 og hreif áhorfendur með sér við með glens og gleði og sló tóninn í þéttsetnum hátíðarsal Grósku hugmyndahúss. 

Birt á vefsíðu VÍSIS 09022024

is_ISIcelandic