fbpx

Sex fyrirtæki í Til Sjávar og Sveita 2021

Tuttugu umsóknir bárust í viðskiptahraðalinn Til sjávar og sveita 2021 sem hófst mánudaginn 15. nóvember og lauk með uppskerudegi þann 10. desember.

Tuttugu umsóknir bárust í viðskiptahraðalinn Til sjávar sem var settur 15. nóvember 2021 og lauk með uppskerudegi þann 10. desember. Hraðallinn var keyrður með öðru sniði og var áherslan lögð á markaðssókn fyrirtækja sem eru tilbúin með vöru eða langt komin í vöruþróun. Umsóknirnar voru mjög sterkar og var ákveðið að fjölga þáttakendum úr fimm í sex.

Fyrirtækin sem valin voru inn í Til sjávar og sveita 2021 voru Jökla, Sifmar (Krakkakropp), MAR crisps, Náttúrulega gott, Nordic Wasabi og Næra.

Teymið hjá Næra notar einstaka aðferð í framleiðslu á heilsusamlegu snakki með íslensku hráefni.
Nordic Wasabi framleiðir hið sjaldgæfa og eftirsótta ferska wasabi sem ræktað er á Íslandi við umhverfisvænar aðstæður.
Jökla er fyrsti íslenski rjómalíkjörinn sem kom á markað í ár og hefur slegið í gegn.
Náttúrulega gott  framleiðir handgert íslenskt granóla án allra aukaefna, viðbætts sykurs eða sætuefna.
Sifmar framleiðir Krakkakropp sem er einstaklega hollur íslenskur barnamatur sem leggur áherslu á að sporna gegn matarsóun.
MAR crisps eru örþunnar harðfiskflögur sem ekki hafa sést áður á innlendum markaði. 

Rík áhersla var á að tengja fyrirtækin við fjárfesta og aðra sérfræðinga á markaði. Til sjávar og sveita er af mörgum talinn einn skemmtilegasti viðskiptahraðallinn sem er í boði þar sem fyrirtækin eru oftar en ekki að vinna með raunverulegar vörur sem þau geta sýnt og leyft fólki að bragða á. 

Bakhjarlar Til sjávar og sveita 2021 eru Mjólkursamsalan og Ísey sem og Samkaup sem stutt hefur við verkefnið í samstarfi við Sjávarklasann, Landbúnaðarklasann og Matís. Verkefnið er jafnframt styrkt af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri Til sjávar og sveita: “Við höfum séð það í gegnum árin að fyrirtæki ná ótrúlegum framförum í okkar hröðlum en svo þegar þeim lýkur þá þarf eitthvað að taka við. Jökla tók þátt í fyrra og eru komin með vöru á markað og þá standa þau frammi fyrir nýjum áskorunum eins og skalanleika og markaðssetningu sem er einmitt það sem við leggjum áherslu á í þessari útfærslu á Til sjávar og sveita.

Tobba Marínós, stofnandi og eigandi Náttúrulega gott: “Það er oft flókið og jafnvel óyfirstíganlegt að komast yfir vaxtaverki þegar lítið fyrirtæki rýkur vel af stað. Það er 80% aukning milli ára hjá okkur en ein vara er ekki nóg. Hvert er náttúrulegt framhald og hvernig skal forgangsraða til að hugmyndir blómstri og stækki. Við hjá Náttúrulega Gott erum tilbúin með heila vörulínu en þurfum að leggjast yfir framhaldið. Okkar vara á sannarlega heima á alþjóðavettvangi en hvernig er best að byrja slika vegferð? Við mamma erum með milljón hugmyndir  sem við vonumst til að verði að skýru aðgerðarplani á næstu vikum með hjálp hraðalsins.

is_ISIcelandic