Shark Tank í Faxaflóahöfnum: Hringiðusprotar skerpa kynningar fyrir lokadaginn

Þriðjudaginn 6. maí tóku sprotarnir í Hringiðu 2026 þátt í Shark Tank pitch-viðburði í boði Faxaflóahafna. Þar kynntu teymin hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og fengu skemmtilega og uppbyggilega endurgjöf til að skerpa á kynningum sínum fyrir lokadag hraðalsins. 

Faxaflóahafnir, bakhjarl Hringiðu, tóku vel á móti sprotum og gestum í glæsilegum húsakynnum með útsýni yfir höfnina í Reykjavík. Í dómnefndinni sátu Friðrik Þór Hjálmarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs, J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða, og Tinna Jóhannsdóttir, aðstoðarmaður hafnarstjóra. Við þökkum þeim kærlega fyrir frábærar móttökur.

Næsta skref hjá sprotunum, Araxni, E-Lísa, IORDEN, Loopable, Ratatag, Soil Lagoon og Thermal Beets Records, er lokadagur Hringiðu sem fer fram í Hörpu þann 20. maí.

Hringiða er viðskiptahraðall á vegum KLAK – Icelandic Startups sem styður við sprotafyrirtæki sem þróa grænar lausnir og sjálfbær verkefni. Markmið hraðalsins er að efla nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærari framtíð og skapa umhverfi þar sem hugmyndir geta þróast í öflug fyrirtæki.

Bakhjarlar Hringiðu eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Terra, og Samtök iðnaðarins.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.