fbpx

Tíu sprengistjörnur Startup SuperNova 2023  

Teymin í Startup SuperNova, Astrid EdTech,GET Ráðgjöf, GæðaMeistari, Lóalóa, Modul Work, Revolníu, Skarpur, Soultech. Vantar á mynd KuraTech og Lykkjustund.

Teymin í Startup SuperNova: 

Astrid EdTech, GET Ráðgjöf, GæðaMeistari, Lóalóa, Modul Work, Revolníu, Skarpur, Soultech. Vantar á mynd KuraTech og Lykkjustund.

Tíu sprotafyrirtæki hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup SuperNova 2023 í kjölfar viðamikils undirbúnings og valferlis sem hófst með Masterclass námskeiði í júní. Alls kepptu á þriðja tug framsækinna sprotafyrirtækja um sæti í hraðlinum. 

Sprotarnir tíu sem taka nú þátt í Startup SuperNova vinna að fjölbreyttri nýsköpun á ólíkum sviðum; allt frá snjallforriti með heilandi tíðnir til að hjálpa fólki með streitutengd vandamál yfir í gagnvirkar prjónauppskriftir sem laga sig að hugmynd prjónarans. En þótt sprotarnir séu margskonar eiga þeir allir það sameiginlegt að vinna að nýjungum sem ætlaðar eru alþjóðamarkaði.

Meðal sprotafyr­ir­tækja sem hafa gert það gott undanfarin ár eftir þátttöku í Startup SuperNova eru Plaio, Procura, Swapp Agency, Bulby, Keeps, Quick Lookup, FitTales, Deed Delivery og Stubbur.

“Fulltrúar KLAK, Nova og Huawei hafa unnið hörðum höndum að því undanfarna daga að velja sprotafyrirtæki til þátttöku í viðskiptahraðlinum. Það er sérstaklega ánægjulegt að okkur bárust umsóknir frá fjölmörgum öflugum frumkvöðlum.Við óskum topp 10 teymunum til hamingju og hlökkum til að vinna náið með þeim næstu vikur,” segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.  

Startup Supernova er sam­starfs­verk­efni Nova og KLAK – Icelandic Startups með stuðningi Huawei þar sem leitast er við að byggja upp viðskiptalausnir ætlaðar alþjóðamarkaði.

Astrid EdTech

Astrid EdTech segir sögur um loftslagsmál og hvetur ungt fólk til að fræðast, ræða nýjar hugmyndir og taka af skarið.

Í teyminu eru þau Ásta Olga Magnúsdóttir, Vanessa Carpenter, Geir Borg, Beatriz Prados, Sunna Mogensen, Lemke Mejer, Haukur Hilmarsson og Laufey Stefánsdóttir.

Astrid EdTech uses the power of storytelling in immersive mediums to benefit climate change education.

GET Ráðgjöf

GET Ráðgjöf kynnir nýja nálgun á Mínar síður þar sem fyrirtæki vinna með viðskiptagögn margra
aðila en í gegnum eitt viðmót á hraðan, þægilegan og öruggan hátt.

Í teyminu eru þau Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir og Eyvindur Tryggvason.

GET Ráðgjöf introduces a new approach to customer self-service portals where companies collaborate with multiple parties through a single interface in a fast, efficient and secure way.

GæðaMeistari

GæðaMeistarinn er gæðastjórnunarkerfi fyrir einyrkja, lítil og meðalstór fyrirtæki í byggingariðnaði. Einföld, skýr og hagstæð lausn sem bætir gæði og lækkar kostnað.

Í teyminu eru þau Sunna Ösp Þórsdóttir, Sara Hvanndal Magnúsdóttir, Reynir Viðar Ingason og Jón Andrés Vilhelmsson.

QualityMaestro is a quality management system for independent, small and medium sized companies in the construction industry. A simple, clear and affordable solution that improves quality and lowers costs.

KuraTech

KuraTech margfaldar virði þrotabúa með sjálfvirknivæðingu og aukinni yfirsýn fyrir skiptastjóra.

Í teyminu eru þau Kristján Óli Ingvarsson, Árni Steinn Viggósson og Sara Árnadóttir.

KuraTech maximizes the value of bankruptcy estates with automation and increased overview for the liquidator.

Lykkjustund

Lykkjustund (e. Knittable) eykur sköpunargleði prjónara með því að bjóða upp á gagnvirkar prjónauppskriftir sem aðlagast hugmynd prjónarans, virka fyrir allar garntegundir og koma í öllum stærðum. Lausnin styttir tímann frá hugmynd yfir í prjón úr klukkutímum niður í mínútur fyrir almenna prjónarann og tímann frá hugmynd yfir í fullbúna uppskrift frá mánuðum niður í klukkustundir fyrir prjónahönnuði.

Í teyminu eru þau Nanna Einarsdóttir, Renata Sigurbergsdóttir Blöndal og Jón Þorsteinsson.

Knittable enables the creativity of knitters by providing interactive knitting patterns that adapt to their own design idea, work for any yarn type and come in any size. The solution decreases the idea-to-knitting time from hours to minutes for the general knitter, and the idea-to-market time from months to hours for knit designers.

Lóalóa

Lóalóa er einföld lausn fyrir söfn af myndböndum og öðru efni. Kerfið bæði geymir efni og dreifir því á ýmsa miðla auk þess að hverju safni fylgja sérsniðnar vefsíður sem hægt er að koma fyrir undir hvaða vef sem er.

Í teyminu eru þeir Tinni Sveinsson, Valur Hrafn Einarsson og Sverrir Vilhjálmur Hermannsson.

Lóalóa is an easy to use online video platform for business. A simple solution to manage, store and share video and other digital content. It also offers dedicated webpages with each archive that can be placed under any website.

Modul Work

Modul Work er skýjalausn sem eykur starfsánægju með virkri þátttöku fólks í starfsþróun sinni í gegnum beinan eignarhlut í sínu starfi með notkun lifandi starfslýsinga. Lifandi starfslýsingar eru gagnvirk sniðmót sem smætta störf í verkefni þar sem teymi hafa yfirsýn og samstarf um verkaskiptingu í síbreytilegu vinnuflæði með aðstoð gervigreindar.  

Í teyminu eru þau Kristinn Freyr Haraldsson, Vilborg Þórðardóttir, Mats Lennartsson og Jónas Óskar Magnússon.

Modul Work is a cloud-solution that increases job satisfaction by empowering people to actively participate in their job development through direct ownership of their job using dynamic job descriptions. Dynamic job descriptions are modular templates that deconstruct jobs into assignments where teams have an overview and collaborate in the ever-changing flow of work supported by AI.

Revolníu

Revolníu býr til heilandi tíðnir til að hjálpa fólki með streitutengd vandamál, svefn og einbeitingu, og hjálpa fólki með heyrnarsuð (tinnitus). Við erum að búa til snjallforrit og erum að þróa heyrnartól/heilaskanna.

Í teyminu eru þau Baldur Vignir Karlsson, Georg Holm, Kristján Þór Héðinsson og Einar Jón Einarsson.

Revolníu is creating relaxing Solfeggio frequencies to help with stress related ailments, sleep and focus, and to help people with tinnitus. We are creating an app and developing headphones/brainscanner.

Skarpur

Skarpur þróar nýja hugbúnaðarlausn til að umbylta verkefnaskipulagningu. Kerfið býr sjálfvirkt til og viðheldur bestuðum tímaáætlun sem gerir þér kleift að bregðast snögglega við breytingum, minnka handavinnu og taka reksturinn þinn á nýtt stig í hagkvæmni og skilvirkni.

Í teyminu eru þeir Aron Ásmundsson og Eyþór Helgason.

Skarpur is developing an innovative software solution to revolutionize project planning. The system automatically creates and maintains optimized schedules, enabling you to respond quickly in changing environments, freeing you from manual labor, and taking your planning to a new level of efficiency and effectiveness.

Soultech

Soultech þróar hugbúnað sem umbreytir samvinnu almennings & sálfræðinga. Okkar sýn er að allir, óháð fjárhag & staðsetningu hafi aðgang að sálfræðiaðstoð & sjálfshjálpar-sálfræðimeðferðum.

Í teyminu eru þau Bryndís Lóa Jóhannsdóttir, Davíð Haraldsson, Stefán Ólafsson, Pétur Örn Jónsson og Sophia Barcala.

Soultech develops software that transforms the collaboration between the public and psychologists. Our vision is that everyone, regardless of financial status & location, should have access to psychological services, content & self-help psychology treatments.

is_ISIcelandic