UNLEASH Europe: Einstakt tækifæri fyrir íslenska frumkvöðla undir 35 ára

Í sumar kemur saman hópur ungra frumkvöðla og breytingasmiða víðsvegar að úr Evrópu í Kaupmannahöfn til að takast á við stærstu áskoranir borgarsamfélaga framtíðarinnar. Þar er kjörið tækifæri fyrir ungt íslenskt hugvit að stíga skrefið út á alþjóðlegan vettvang. Umsóknarfrestur er til 3. mars.

UNLEASH eru alþjóðleg félagasamtök, stofnuð árið 2017 af dönskum stjórnvöldum og Carlsberg Foundation, með það markmið að hrinda heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna í framkvæmd í gegnum metnaðarfullar nýsköpunarstofur um allan heim. Verndari samtakanna er Mary Danakonunglýja og hafa UNLEASH viðburðir áður verið haldnir m.a. í Rwanda, Indlandi og á Grænlandi.

UNLEASH Europe – Kaupmannahöfn 27. júní – 4. júlí 2026 

Næsta nýsköpunarstofa UNLEASH fer fram í BLOXHUB í Kaupmannahöfn dagana 27. júní–4. júlí 2026. Áherslan er á borgir, samfélög og byggt umhverfi og þær áskoranir sem brenna á Evrópu í dag – allt frá loftslagsáhættu yfir í húsnæðisvanda og sjálfbærar samgöngur.

Þátttakendur, svokallaðir Talents, vinna í þverfaglegum teymum að lausnum innan fjögurra þema:

  • Circular Futures: Hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði
  • The Just Green Transition: Sjálfbærar borgir sem eru aðgengilegar öllum
  • Rapidly Changing Environments: Aðlögun á norðlægum og afskekktum svæðum
  • Thriving Cities: Borgarrými sem styður heilsu og vellíðan

Ferðalög til og frá Kaupmannahöfn, gisting og uppihald verða greidd.

Íslendingar meðal þátttakenda 

UNLEASH er þegar orðið þekkt nafn í íslenska frumkvöðlavistkerfinu. Alma Ómarsdóttir hjá Heima og Kristófer Reynisson, frumkvöðull af íslenskum uppruna í Sviss, tóku þátt í UNLEASH nýsköpunarstofunni í Rwanda árið 2024 og lýsa því hvernig þessi vika átti stóran þátt í að skerpa hugmyndir, tengja þau við alþjóðlegt tengslanet og flýta næstu skrefum í verkefnunum þeirra.

Umsóknir fyrir 3. mars 

Tækifærið er ætlað öllum Evrópubúum undir 35 ára sem brenna fyrir nýsköpun, sjálfbærni og framtíð borganna – hvort sem viðkomandi er nemi, frumkvöðull eða starfandi sérfræðingur.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.