Leitin að Norðansprotanum er hafin á ný og dagana 15.–22. apríl verður sérstaklega leitað að ferskum, metnaðarfullum nýsköpunarhugmyndum frá Norðurlandi. Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem áhersla er lögð á lausnir tengdar mat, vatni og orku í takt við stefnu Norðanáttar um sjálfbæra framtíð svæðisins.
Að keppninni standa meðal annars SSNE, SSNV, Drift EA, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Hraðið. Fjárfestingarsjóðurinn Landvættir, í rekstri Axum verðbréfa, veitir verðlaunafé í Norðansprotann og undirstrikar þannig trú fjárfesta á hugviti og vaxtartækifærum á Norðurlandi.
Markmið Norðansprotans er að finna og styðja hugmyndir sem geta orðið að arðbærum og samfélagslega mikilvægum lausnum – hvort sem þær spretta úr rannsóknum, atvinnulífi eða reynslu fólks úr nærumhverfinu. Allir geta tekið þátt, með eða án hugmyndar, einir eða í teymi, svo lengi sem metnaður er til staðar til að þróa hugmyndina áfram.
Umsækjendur skrá sig til leiks með því að fylla út skráningarform á vef SSNE. Í kjölfarið fá þátttakendur nánari leiðbeiningar, meðal annars um hvernig setja á saman stuttan einblöðung sem lýsir hugmyndinni, vandanum sem hún leysir, lausninni sjálfri, markhópnum og mögulegu tekjumódeli. Úr hópi umsækjenda verða valin 5–8 teymi sem fá tækifæri til að kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd á lokaviðburði þar sem Norðansprotinn 2026 verður krýndur.
Norðansprotinn er mikilvægur hlekkur í uppbyggingu öflugs nýsköpunarvistkerfis á Norðurlandi. Keppnin tengir saman frumkvöðla, háskóla, stoðkerfi og fjárfesta og skapar vettvang þar sem góðar hugmyndir fá svigrúm til að vaxa.
Frumkvöðlar og hugmyndaríkt fólk á Norðurlandi – nú er tækifærið til að stíga skrefið, deila hugmyndinni og fá faglegan stuðning til að þróa hana áfram.
