Ratatag í Morgunútvarpinu á Rás 2

Hringiðu-sprotinn Ratatag mætti í Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun og kynnti lausn sem snýr að betri nýtingu á eigum fólks og minni sóun. Ratatag tengir saman eigendur og finnendur týndra muna með einföldu QR-kóðakerfi sem gerir fólki kleift að endurheimta fatnað og búnað á auðveldan hátt.

Markmiðið er að lengja líftíma vörunnar, draga úr þörf á nýjum innkaupum og styðja þannig við sjálfbæra neyslu án þess að fórna þægindum. Þetta er skýrt dæmi um hvernig skapandi tækni og hagnýt hugmynd geta unnið saman að jákvæðum samfélagslegum áhrifum.

Ratatag tekur þátt í Hringiðu 2026 hjá KLAK – Icelandic Startups, þar sem teyminu stendur til boða leiðsögn, tengslanet og stuðningur við næstu skref í þróun og vöxt. Við erum stolt af því að fá að fylgja teyminu eftir á þessu spennandi ferðalagi.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni í Morgunútvarpinu hér:

https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunutvarpid/23822/bilicr/leysa-thekkt-vandamal-foreldra

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.