Affineva er sigurvegari Gulleggsins 2026 og Lavashow hlýtur Heiðursverðlaun Gulleggsins

Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku í dag þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum sal og dómnefnd skipaðri fulltrúum bakhjarla keppninnar.

Keppnin er haldin af KLAK – Icelandic Startups og hefur frá árinu 2008 verið mikilvægur stökkpallur fyrir frumkvöðla með verkefni á hugmyndastigi. Fjöldi sprotafyrirtækja sem nú hafa náð langt á innlendum og erlendum markaði stigu sín fyrstu skref á sviði Gulleggsins.

Í ár tók þátt fjölbreyttur hópur teyma sem spannar allt frá líftækni og sjálfbærri orku yfir í stafrænar lausnir og nýjar leiðir til að nýta gögn, tækni og íslenskar auðlindir og samkeppnin var því mikil.

Gulleggið 2026

Landsbankinn, aðalbakhjarl Gulleggsins, afhenti vegleg peningaverðlaun til þriggja efstu teymanna í lokakeppninni:

  1. sæti: 2.000.000 kr.
  2. sæti: 1.000.000 kr.
  3. sæti: 500.000 kr.

Sigurvegari Gulleggsins 2026 var teymið Affineva sem hlaut 2.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum. Hugmynd teymisins snýst um að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.

Í öðru sæti var teymið IORDEN með lausn sem nýtir gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda og bæta gæðaeftirlit hjá smærri matvælaframleiðendum. Teymið fékk 1.000.000 kr.

Í 3. sæti lenti teymið Norrstone með stafrænt vistkerfi fyrir skartgripi – lausn sem byggir á stafrænum skartgripavottorðum á bálkakeðju sem gera auðveldari vottun, tryggingar, vildarkerfi og endursölu. Teymið hlaut 500.000 kr. í verðlaun.

Heiðursegg Gulleggsins 2026 til Lavashow

Heiðursegg Gulleggsins 2026 var veitt fyrirtækinu Lavashow en hugmyndin á bak við fyrirtækið var meðal þeirra tíu hugmynda sem kepptu um Gulleggið árið 2016. Lavashow hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir að umbreyta náttúruöflunum í einstaka upplifun fyrir gesti, byggja upp sterkt vörumerki og skapa verðmæti bæði í ferðaþjónustu og skapandi greinum.

Með heiðursegginu er viðurkennt það mikla frumkvöðlastarf, úthald og hugrekki sem liggur að baki því að byggja upp fyrirtæki eins og Lavashow, 

Aukaverðlaun

Auk peningaverðlauna keppa teymi Gulleggsins um margvísleg aukaverðlaun sem veitt eru af bakhjörlum og samstarfsaðilum keppninnar. Þessi verðlaun fela í sér sérhæfða ráðgjöf, aðstöðu og handleiðslu sem hjálpa teymunum að taka næstu skref í þróun hugmynda sinna.

  • Frumukjarninn – líftækniverðlaun Gulleggsins 2026
    Alvotech og Fruman veittu Frumukjarnann til bestu líftæknihugmyndar keppninnar. Verðlaunin samanstóðu af 300.000 kr. þróunarstyrk, þriggja mánaða þróunar- og prófunartækifæri hjá Frumunni, aðgangi að rannsóknarsetri, handleiðslu sérfræðinga í líftækni og sérsmíðuðum verðlaunagrip frá Héðni.
    Frumukjarnann hlaut sigur teymið Affineva.
  • KPMG – sérfræðiráðgjöf fyrir næstu skref
    KPMG veitti einu teymi aukaverðlaun í form 20 klukkustunda ráðgjafar sem nýtist við áætlunargerð, fjárfestakynningar, stofnun félags, skattamál og önnur lykilskref í uppbyggingu sprotafyrirtækis.
    Verðlaun KPMG hlaut E-Lísa.
  • Gróska | Heimar – aðstaða í hjarta nýsköpunar
    Gróska | Heimar veittu einu teymi aðgang að aðstöðu í Grósku, einum öflugasta suðupotti nýsköpunar á Íslandi, sem gerir teyminu kleift að þróa hugmynd sína í nálægð við önnur sprotafyrirtæki og fjárfesta.
    Þessi verðlaun Grósku og Heima hlutu Affineva .
  • Origo – ráðgjöf frá sérfræðingum í sölu, markaðssetningu og stafrænum lausnum
    Origo veitti vinsælasta teyminu í kosningu gesta og áhorfenda ráðgjöf frá sérfræðingum fyrirtækisins, meðal annars í sölu- og markaðsmálum og þróun stafrænnar lausnar.
    Verðlaun Origo fyrir vinsælasta teymið hlaut Deadgroove Games
    .
  • JA Iceland – alþjóðlegt tækifæri í Riga
    JA Iceland veitti einu háskólateymi tækifæri til að taka þátt í GEN-E nýsköpunarkeppninni í Riga í Lettlandi þar sem teymið fær að mæta alþjóðlegum jafningjum og fjárfestum og reyna á hugmynd sína á stærra sviði.
    JA Iceland verðlaunin hlaut IORDEN.

Nýsköpun sem færir hugmyndir frá sviðinu út í samfélagið

Gulleggið er opið öllum sem hafa hugmynd og vilja prófa sig áfram í nýsköpun, óháð bakgrunni eða reynslu. Þátttakendur fá fræðslu, handleiðslu og tækifæri til að prófa hugmyndir sínar í krefjandi umhverfi, þar sem áhersla er á að læra hratt, þróa áfram og tengjast öflugu vistkerfi frumkvöðla, fjárfesta og sérfræðinga.

„Teymin í Gullegginu í ár sýna enn og aftur hversu fjölbreytt og öflug nýsköpun er á Íslandi. Hér eru frumkvöðlar að leysa raunveruleg vandamál, skapa ný verðmæti og leggja sitt af mörkum til sjálfbærari framtíðar,“ segir Anna Schalk Sóleyjardóttir, verkefnastjóri Gulleggsins. „Við erum sérstaklega þakklát bakhjörlum Gulleggsins sem gera okkur kleift að styðja teymi áfram – ekki bara með peningaverðlaunum heldur líka með raunverulegri aðkomu að þeirra vegferð“

Með lokakeppni Gulleggsins 2026 er enn einni árangursríkri keppni lokið, en fyrir mörg teymi er þetta aðeins fyrsta skrefið. Næstu mánuði munu þau halda áfram að þróa hugmyndir sínar – með aðstoð stuðningsnetsins sem Gulleggið, KLAK og bakhjarlar keppninnar hafa byggt upp.

Nánari upplýsingar um Gulleggið og þátttöku: Gulleggid.is

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.