Álfrún Perla Baldursdóttir ráðin til KLAK

KLAK – Icelandic Startups hefur ráðið Álfrúnu Perlu Baldursdóttur í starf alþjóðafulltrúa og verkefnastjóra og hefur hún störf í byrjun ágúst.


Álfrún kemur til KLAK með víðtæka reynslu úr alþjóðasamstarfi, verkefnastjórnun og stefnumótun, auk sterkrar tengingar við nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfið á Íslandi. Hún er stjórnmálafræðingur að mennt, lærði átakafræði við LSE og afvopnun og samningatækni við Harvard háskóla. Hún hefur starfað fyrir utanríkisráðuneytið, NATO og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, þar sem hún kom meðal annars að uppbyggingu samstarfs við MIT-háskóla og þróun nýsköpunarhraðalsins Snjallræði.


Undanfarin ár hefur Álfrún unnið að alþjóðlegum verkefnum á sviði varnarmála, nýsköpunar og samstarfs ríkja og stofnana, meðal annars innan Atlantshafsbandalagsins og í samstarfi við Norðurlöndin og Bandaríkin. Hún hefur einnig reynslu af rekstri eigin fyrirtækja. Hún kom að stofnun fjölskyldu fyrirtækisins Hellanna við Hellu og rekur Jólaálfinn. Hún hefur því góða innsýn í áskoranir og tækifæri frumkvöðla og sprotafyrirtækja.
Í starfi sínu hjá KLAK mun Álfrún leiða og þróa alþjóðlegt samstarf, styðja við tengingar íslenskra sprotafyrirtækja við erlenda markaði og vinna að uppbyggingu verkefna sem styrkja íslenskt nýsköpunarumhverfi á alþjóðavettvangi.


„Við erum afar spennt að fá Álfrúnu til liðs við KLAK. Hún kemur með einstaka blöndu af alþjóðlegri reynslu, tengslaneti og drifkrafti sem mun nýtast okkur og íslenska nýsköpunarsamfélaginu mjög vel,“

segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK.


Álfrún segist hlakka til að hefja störf hjá KLAK, vinna með skapandi og lausnarmiðuðum sprotum og taka þátt í að styrkja tengsl íslenskra frumkvöðla við alþjóðlegt nýsköpunarumhverfi.


„Íslensk nýsköpun hefur gríðarleg tækifæri á alþjóðavettvangi og ég hlakka til að vinna með sprotum og samstarfsaðilum KLAK að því að opna fleiri dyr út í heim,“

segir Álfrún
is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.