Íslenska sprotafyrirtækið Treble hefur verið valið eitt af sex aðila í úrslitum Nordic Scalers Award 2026, sem veitt er þeim norrænu fyrirtækjum sem skara fram úr í vexti, fjármögnun og alþjóðlegum metnaði. Tilnefningin er mikil viðurkenning fyrir Treble og enn eitt dæmið um styrk íslensks nýsköpunarumhverfis.
Í ár voru 36 fyrirtæki frá öllum Norðurlöndum tilnefnd en að lokum voru sex fyrirtæki valin í úrslit. Þar á meðal er Treble frá Íslandi ásamt Flatpay og Lunar frá Danmörku, Yazen frá Svíþjóð, IQM Quantum frá Finnlandi og Two inc frá Noregi. Lokaverðlaunin verða afhent í Stokkhólmi 28. maí.
Það að Treble sé komið í hóp sex áhugaverðustu og verðmætustu scaleup-fyrirtækja Norðurlanda sýnir hversu öflugur grunnur er til staðar á Íslandi.

Nordic Scaleup Award er veitt fyrirtækjum sem hafa að lágmarki 2 milljónir evra í veltu, að minnsta kosti 10 starfsmenn og árlegan vöxt upp á að lágmarki 20% síðustu þrjú ár. Verðlaunin eru veitt í samstarfi við Nordic Innovation og Dagens Industri og leggja áherslu á skalanleika, sjálfbæran vöxt og sterkar varnir gagnvart samkeppni.
KLAK – Icelandic Startups óskar Treble innilega til hamingju og óskar þeim góðs gengis í lokakeppninni þar sem íslendingar eiga einnig talsmann í dómnefnd. En það er enginn annar en Freyr Friðfinnsson, fyrrum starfsmaður KLAK