fbpx

Björn Skúlason, forsetagæi grillaði fyrir frumkvöðla í BBQ & Pitch

Það var mikil spenna sem myndaðist í Grósku í gær þegar hin árlega grillveisla í viðskiptahraðlinum Startup SuperNova, BBQ & Pitch, fór í gang. Frumkvöðlar, sprotar og fjárfestar flykktust í hugmyndahús nýsköpunar til að næla sér í grillborgara áður en þátttakendur úr Startup SuperNova stigu hvert á eftir öðru upp á lyftara sem lyfti þeim í loft upp til að fara með lyftukynningu. 

Hitað var upp í grillunum þegar grillmeistarar mættu í Grósku en hamborgararnir kláruðust rétt áður en sprotarnir fóru með kynningarnar sínar, enda vel þjálfuð liðsheild á grillinu sem þekktu sín hlutverk. Frumkvöðlar fengu að snæða á bragðbombum frá Birni Skúlasyni, “Forsetagæja”, KLAK og Startup SuperNova alumni og stofnanda just björn, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Margréti Tryggvadóttur, forstjóra Nova, Helgu Valfells, meðeigandi fjárfestingasjóðsins Crowberry Capital, og Sigurði Ólafssyni, framkvæmdastjóra Gróðurhússins, sprotaseturs Grósku.

Sprotafyrirtækin sem taka þátt í Startup SuperNova og fóru með lyftukynningar voru FairGame, GrowthApp, JarðarGreining, Massif.Network, Medvit Health, Neurotic, TAPP, Thorexa, The Gyna-app, VibEvent. 

“Viðburðurinn gekk vonum framar, enda ekki annað hægt með þetta úrvalalið á grillinu. Við höldum reglulega lyftukynninga viðburði í okkar verkefnum hjá KLAK og því fannst okkur tilvalið í ár að ýta frumkvöðlunum enn meira út fyrir þægindarammann og taka lyftukynninguna í skæralyftu sem kom virkilega skemmtilega út. Þetta er í fimmta sinn sem við keyrum Startup SuperNova og það er magnað að sjá hvað gæðin í sprotaumhverfinu vaxa á hverju ári”, er haft eftir Frey Friðfinnssyni, verkefnastjóra Startup SuperNova hjá KLAK – Icelandic Startups.  

“Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hvað jarðvegurinn er frjór og framtíðin björt í nýsköpunarsenunni og það er hægt að segja að teymin í ár séu einstaklega sterk og þeirra verkefni eru án efa meðal þeirra sem við munum sjá meira af á næstu árum. Startup SuperNova fer stigvaxandi ár frá ári og gaman að sjá þann fjölda sem mætti á viðburðinn sem sýnir okkur að áhuginn og meðbyrinn er mikill.” segir Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova.

Lesa má meira um viðskiptahraðalinn Startup SuperNova hér.

Startup SuperNova er í umsjón KLAK – Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Huawei með stuðningi frá Grósku hugmyndahúsi.

Birtist á VB og MBL, Smartlandi

is_ISÍslenska