fbpx

Ertu til í nýsköpun? Atvinnudagar Háskóla Íslands

Atvinnudagar Háskóla Íslands fara fram dagana 3. – 7. febrúar og er lögð sérstök áhersla á atvinnumál og undirbúning nemenda fyrir þátttöku á vinnumarkaði. Opnunarviðburðurinn fer fram mánudaginn 3. febrúar í Grósku í Vatnsmýrinni og býður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem nemendur geta kynnt sér nýsköpunartækifæri og hvernig hægt er að nýta þau í atvinnulífinu.

Dagskrá opnunarviðburðar

11:00 – Opnunarerindi
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
11:10 – KLAK kynning
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK
11:20 – Stuðningur háskólans við nýsköpun
Oddur Sturluson, verkefnastjóri Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands
11:30 – Reynslusaga frumkvöðla sem voru í HÍ
Magnús Sigurbjörnsson og Þorvaldur Skúli Skúlason, stofnendur Deed Delivery
11:40 – Nýsköpunarsjóður námsmanna
Þorgerður hjá Rannís
11:50 – Samfélag nýsköpunar
Gísli Karl Gíslason, verkefnastjóri Vísindagarða
12:00 – Formlegri dagskrá lokið
Gestum gefst kostur á að kynnast spennandi nýsköpunarfyrirtækjum sem eru að leita að starfsfólki og starfsnemum í viðburðarrými Mýrinnar á fyrstu hæð í Grósku. Þar verða fyrirtæki eins og Pure North, Plaio, BagBee, Hopp, Heima, Hoiberg og Evolv með kynningar.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands verður einnig á staðnum til að kynna starfsþjálfun sviðsins og Nýsköpunarsjóð námsmanna. Léttar veitingar verða í boði Vísindagarða HÍ.

 

 

Frekari upplýsingar og skráning á viðburðinn má finna hér: 

 

Við hvetjum alla nemendur Háskóla Íslands til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að fræðast um nýsköpun, tengjast atvinnulífinu og kanna möguleika sína í framtíðinni!

is_ISÍslenska