NOVA - Lágmúli 9 108, 108 Reykjavík, Iceland

Klúðurkvöld Startup SuprNova

15 maí - 2025 17:00
Viðburðurinn

Mistök eru óumflýjanlegur hluti af frumkvöðlaferðalaginu – en hvers vegna ekki að læra af mistökum annarra?

Á Klúðurkvöldi Startup SuperNova fáum við að heyra reynslusögur frumkvöðla sem hafa lent í alvöru áskorunum. Þau segja okkur frá sínum stærstu klúðrum, hvað fór úrskeiðis og – mikilvægast af öllu – hvað þau lærðu.
Þetta er einstakt tækifæri til að hlæja, læra og fá ómetanleg ráð fyrir þína eigin vegferð 💥

Viðburðurinn markar jafnframt opnun umsókna í Startup SuperNova, hraðalinn sem KLAK – Icelandic Startups stendur að í samstarfi við Nova.
Ef þú ert með viðskiptahugmynd er þetta fullkomið tækifæri til að fá innblástur og heyra frá þeim sem hafa siglt um stormasama sjó frumkvöðlastarfsins ⛵

Tengdir viðburðir

is_ISÍslenska