Hugmyndahraðhlaup í heilsutækni haldið í annað sinn: Nýjar áskoranir kynntar

Við bjóðum frumkvöðlum, nemum, fagfólki og öllum áhugasömum að taka þátt í kraftmiklu hugmyndahraðhlaupi þar sem nýsköpun í heilsutækni er í forgrunni. Markmiðið er að móta lausnir sem geta raunverulega bætt þjónustu, aðgengi og upplifun fólks í heilbrigðiskerfinu.

Hugmyndahraðhlaupið fer fram dagana 13. – 14. mars 2026 í Grósku og nú hafa áskoranirnar sem unnið verður með verið opinberaðar.

Í tveggja daga hraðhlaupi vinna þátttakendur í teymum að nýjum lausnum fyrir raunverulegar áskoranir í heilsutækni. Þau fá handleiðslu frá sérfræðingum, læra að móta og skerpa á hugmyndinni og fá tækifæri til að kynna lausnirnar fyrir dómnefnd. Vegleg verðlaun bíða sigurvegara, en ekki síður opnast tækifæri til áframhaldandi þróunar, tengslanets og samstarfs.

Takmarkaður sætafjöldi – skráning er nauðsynleg og fyrstur kemur, fyrstur fær.

Áskoranirnar sem teymið þitt getur tekist á við

Landsspítali

Hvernig getum við gert það einfaldara fyrir eldra fólk, aðstandendur þeirra og fagfólk að finna, sækja um og samræma þá þjónustu sem þarf þegar þjónustuþörf eykst?

Heilbrigðisráðuneytið

Hvernig getum við nýtt gögn, tækni og nýjar nálganir til að bæta tímabókanir, mat, forgangsröðun og nýtingu þjónustu fyrir almenning?

Stafrænt Ísland

Stafrænt Ísland óskar eftir notendalausn til að styðja við einstaklinga í skilgreindri meðferð þannig að þeir geti verið virkir þátttakendur í sinni meðferð og eigi auðvelt með að leita sér viðeigandi aðstoðar.

Opinn flokkur

Við leitum að skapandi og framsæknum heilsutæknilausnum sem geta bætt aðgengi, skilvirkni og gæði heilbrigðisþjónustu fyrir öll.

Fyrir hverja er hugmyndahraðhlaupið?

Hugmyndahraðhlaupið hentar öllum sem hafa áhuga á nýsköpun og heilsutækni – hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin með lausn, ert með lengra komna hugmynd, vinnur innan heilbrigðiskerfisins eða kemur úr allt öðrum geira en sérð tækifæri til umbóta. Þú þarft ekki að vera með fullmótað teymi til að taka þátt – forvitni, lausnamiðuð hugsun og vilji til samvinnu duga mjög langt.

Af hverju að taka þátt?

Í hugmyndahraðhlaupinu færð þú:

  • tækifæri til að vinna með raunverulegar áskoranir úr íslenska heilbrigðiskerfinu,
  • handleiðslu og endurgjöf frá sérfræðingum í nýsköpun og heilsutækni,
  • vettvang til að prófa og kynna hugmyndir fyrir dómnefnd,
  • og ekki síst – ný tengsl við aðra þátttakendur, leiðbeinendur og lykilaðila í vistkerfi nýsköpunar.

Skráning – fyrstur kemur, fyrstur fær

Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku og er sætafjöldi takmarkaður. Skráning fer fram hér:

Hvetjum við alla sem brenna fyrir betra, aðgengilegra og skilvirkara heilbrigðiskerfi til að taka þátt, prófa hugmyndirnar sínar í verki og leggja sitt af mörkum til nýsköpunar í heilsutækni.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.