
Heilsutækni er á fleygiferð og helgina 7.–8. mars 2025 sameinuðust öflug teymi frumkvöðla, sérfræðinga og hugvitsfólks í Grósku Hugmyndahúsi til að leysa áskoranir heilbrigðiskerfisins á Hugmyndahraðhlaupi KLAK – Icelandic Startups. Markmiðið var skýrt: Að móta nýjar og skapandi lausnir sem geta bætt heilbrigðisþjónustu á Íslandi og gert hana aðgengilegri fyrir öll.
Á tveimur dögum tókst þátttakendum að greina og skilja vandamál, fá ráðgjöf frá leiðandi sérfræðingum og móta hugmyndir sem geta skipt sköpum fyrir framtíð heilbrigðisþjónustu.
Við lok fyrsta fasa hraðhlaupsins höfðu myndast sex sterk teymi sem unnu að spennandi lausnum sem hver um sig leysir raunveruleg vandamál í heilbrigðiskerfinu, undir dyggri leiðsögn aðila frá Stafrænu Íslandi, Heilbrigðisráðuneytinu, Landspítala og KLAK – Icelandic Startups.







Innsýn frá reynslumiklum frumkvöðli

Á laugardeginum höfðu teymin kynnt sér vandamálin til hins ítrasta og myndað sér sterka skoðun á því hvernig lausnin þeirra átti að líta út. Þá kom Jón Ingi Bergsteinsson, stjórnarformaður IceBan og reyndur frumkvöðull, í heimsókn til þess að ræða við þátttakendur Hugmyndahraðhlaupsins og gefa þeim innblástur. Jón fór yfir frumkvöðlavegferð sína en hann stofnaði heilsutæknifyrirtækið SMART-TRIAL árið 2013 og seldi það til Greenlight Guru þremur árum síðar.
Fjölbreyttar lausnir sem geta haft mikil áhrif
Teymin komu úr ólíkum áttum og mótuðu fjölbreyttar lausnir sem meðal annars nýta gervigreind, stafræna þjónustu og persónuleg heilsugögn til að gera heilbrigðiskerfið skilvirkara og notendavænna. Þessi fjölbreytileiki sýnir vel þann mikla kraft sem liggur í nýsköpun á þessu sviði, þar sem frumkvöðlar, sérfræðingar og tæknifólk vinna saman að lausnum sem geta haft raunveruleg áhrif.

Næstu skref frumkvöðla eftir hugmyndahraðhlaup
Hugmyndahraðhlaupið var ekki aðeins vettvangur fyrir nýsköpun heldur einnig einstakt tækifæri fyrir þátttakendur að tengjast lykilaðilum í heilsutækni og þróa hugmyndir sínar áfram með stuðningi frá sérfræðingum.
Hugmyndahraðhlaupið var samstarfsverkefni KLAK-Icelandic Startups, Landspítalans, Stafræns Íslands og Heilbrigðisráðuneytisins, sem vinna saman að því að efla nýsköpun í heilbrigðisþjónustu.
Þetta er þó aðeins upphafið. Í haust höldum við áfram að hraða þróun heilsutæknilausna með kraftmiklum viðskiptahraðli, þar sem frumkvöðlar fá enn meiri stuðning til að koma lausnum sínum á markað. 🚀