Íslenska leiðin í Noregi – Hugmyndahraðhlaup í Bergen

Í maí síðastliðnum ferðaðist hópur frá KLAK – Icelandic Startups til Bergen í Noregi til að taka þátt í Arctic Bio Hack, hugmyndahraðhlaupi þar sem markmiðið var að endurhugsa hvernig við nýtum þorskinn. Ekki aðeins sem matvæli, heldur sem uppsprettu verðmæta í líftækni, lyfjaiðnaði, snyrtivöruframleiðslu svo eitthvað sé nefnt.

Ferðin var innblásin af 100% Fish verkefninu hjá Íslenska Sjávarklasanum og árangurssögum fyrirtækja á borð við Kerecis – íslenska einhyrningnum sem hefur sýnt fram á hvernig má umbreyta fiskroði í byltingarkennd lækningatæki með alþjóðleg áhrif.

Verkefnið er styrkt af NORA, ríkjasamstarfi sem spannar Grænland, Ísland, Færeyjar og Noreg undir hatti Norrænu ráðherranefndarinnar, og er liður í sameiginlegri vegferð okkar til að virkja ónotaðar auðlindir og skapa sjálfbærar lausnir fyrir framtíðina.

Milljón króna Þorskurinn

Í samstarfi við norska fyrirtækið Havland, sem stundar sjálfbært landeldi á þorski, könnuðum við hvernig hægt væri að umbreyta þeim hluta fisksins sem oft endar sem í takmarkaðri verðmætasköpun – roði, lifur, beinum, blóði og innyflum í verðmæta hliðarstrauma. Efni sem áður var talið úrgangur getur nú orðið uppspretta ótal tækifæra.

Í gömlu skipaverkstæði í Laksevåg komu saman þátttakendur frá ólíkum löndum og með fjölbreyttan bakgrunn – frá forritun og hönnun til arkitektúrs og sjávarútvegs. Margir höfðu aldrei unnið með þorsk áður, en allir komu með mikilvægt sjónarhorn inn í þessa vinnu.


Næst: Ísland

Ferðinni lýkur ekki í Bergen. Næsta skref verður stigið á Íslandi, þar sem við hittumst aftur til að dýpka samstarfið og tengja hugmyndirnar við íslenskar aðstæður. Við ætlum að halda áfram að móta framtíð þar sem ekkert fer til spillis, þar sem frumkvöðlar gegna lykilhlutverki í því að endurhugsa hvernig við skilgreinum hráefni og verðmæti.

is_ISÍslenska