KLAK klifrar upp lista Financial Times yfir fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu

KLAK – Icelandic Startups hefur í annað árið í röð verið valið á lista Financial Times, Sifted og Statista yfir fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu, Europe’s Leading Start-up Hubs. KLAK klifrar nú upp um þrettán sæti frá fyrra ári þrátt fyrir að um þúsund fleiri nýsköpunarmiðstöðvar hafi verið metnar að þessu sinni.

Á hverju ári framkvæmir Financial Times í samstarfi við Statista ítarlega greiningu á þúsundum nýsköpunarmiðstöðva í Evrópu. Aðeins 180 miðstöðvar hljóta sæti á listanum og er því um mikla viðurkenningu að ræða á vinnu þeirra sem styðja við frumkvöðla og sprotafyrirtæki.

„Það er gríðarlegur heiður að vera aftur á þessum lista – og sérstaklega að hækka um þrettán sæti á milli ára á sama tíma og samkeppnin eykst. Þetta er skýr staðfesting á gæðum þeirrar þjónustu sem KLAK veitir frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi, og sýnir jafnframt að íslenskt nýsköpunarumhverfi stenst samanburð við það sem best gerist erlendis,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

Við val á Europe’s Leading Start-up Hubs er meðal annars horft til umsagna fyrrverandi þátttakenda í viðskiptahröðlum, mati sérfræðinga á borð við fjárfesta, frumkvöðla og fræðimanna, ásamt árangri efnilegustu sprotafyrirtækjanna sem hafa farið í gegnum viðkomandi miðstöð.

Ásta segir að viðurkenningin sé ekki síst til vitnis um styrk vistkerfisins í heild:

„Að baki þessum árangri standa fjölmargir aðilar – frumkvöðlarnir sjálfir, öflugir samstarfsaðilar, mentorar, bakhjarlar og faglegt teymi KLAK. Við sjáum þessa viðurkenningu sem sameiginlegan sigur íslensks nýsköpunarumhverfis og hvatningu til að halda áfram að byggja upp sterkt stuðningsnet fyrir sprotafyrirtæki á öllum stigum.“

KLAK hefur í rúmlega tvo áratugi unnið að því að efla sprotaumhverfið á Íslandi með fjölbreyttum verkefnum og hröðlum. Verkefni á borð við Gulleggið, Startup SuperNova, Startup Tourism, Hringiðu og Dafna hafa hjálpað fjölda frumkvöðla að þróa hugmyndir sínar áfram, styrkja rekstur sinn og í mörgum tilvikum hasla sér völl utan landsteinanna.

„Að fá viðurkenningu frá jafn virtum alþjóðlegum aðilum og Financial Times, Sifted og Statista styrkir okkur í þeirri trú að sú leið sem við höfum valið – þar sem samvinna, handleiðsla og aðgengi að sérfræðiþekkingu eru í lykilhlutverki – skili raunverulegum áhrifum,“ segir Ásta. „Við ætlum að nýta þennan vind í seglin til að halda áfram að styðja frumkvöðla, hraða vexti sprotafyrirtækja og skapa enn meiri verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Við hjá KLAK erum ákaflega þakklát fyrir traustið og stuðninginn sem við fáum frá frumkvöðlum, samstarfsaðilum og bakhjörlum og hlökkum til að halda áfram að ryðja brautina fyrir næstu kynslóð sprotafyrirtækja á Íslandi.”

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.