KLAK og Landsbankinn endurnýja samstarf um Gulleggið til næstu þriggja ára

KLAK – Icelandic Startups og Landsbankinn hafa endurnýjað samstarf sitt um frumkvöðlakeppnina Gulleggið með undirritun nýs þriggja ára samnings. Með samningnum staðfestir Landsbankinn áframhaldandi hlutverk sitt sem aðalbak­hjarl keppninnar og undirstrikar þar með langvarandi stuðning bankans við íslenskt nýsköpunarumhverfi.

Landsbankinn hefur stutt Gulleggið samfellt frá stofnun keppninnar árið 2008 og hefur þannig átt ríkan þátt í að skapa öflugan stökkpall fyrir frumkvöðla á hugmyndastigi. Í gegnum árin hafa fjölmörg farsæl sprotafyrirtæki stigið sín fyrstu skref í Gullegginu, þar á meðal Controlant, Meniga, PayAnalytics, Taktikal og Heima app.


„Gulleggið er einstakur vettvangur fyrir fólk sem vill prófa hugmyndir sínar, læra af öðrum og stíga fyrstu skrefin í frumkvöðlastarfi, að koma hugmynd á legg og byggja upp öflugt fyrirtæki er krefjandi ferli. Þar getur stuðningur á fyrstu stigum ráðið úrslitum. Landsbankinn skilur mikilvægi þess og hefur verið staðfastur bakhjarl Gulleggsins í nær tvo áratugi. Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn og hlökkum til að halda þessu öfluga samstarfi áfram næstu árin.“
– Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

„Landsbankinn hefur alla tíð lagt áherslu á að styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf sem skapar raunveruleg verðmæti fyrir samfélagið. Gulleggið er einstakur vettvangur þar sem hugmyndir fá að vaxa og taka á sig mynd, og við erum stolt af því að halda áfram að vera hluti af þeirri vegferð.“
– Hjalti Harðarson, forstöðumaður markaðsmál hjá Landsbankanum

Gulleggið fer fram árlega í upphafi árs og hefst í vikunni með Hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans, sem fram fer í höfuðstöðvum Landsbankans dagana 9.-10. janúar. Í kjölfarið tekur við Masterclass-námskeið þar sem þátttakendur þróa hugmyndir sínar áfram og undirbúa umsókn í lokakeppnina. Tíu teymi eru að lokum valin til þátttöku í lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í Grósku þann 26. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar má finna á vef Gulleggsins >>

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.