Ljóst er hvaða 10 teymi keppast um Gulleggið 2026! 

Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í Lokakeppni Gulleggsins 2026, einnar stærstu og rótgrónustu frumkvöðlakeppni landsins. Valið fór fram í kjölfar Masterclass Gulleggsins sem haldinn var nýverið í hátíðarsal Grósku og var námskeiðið opið öllum. Sérfræðingar, frumkvöðlar og neglur úr atvinnulífinu miðluðu sinni þekkingu til þátttakenda og í kjölfarið var opnað fyrir umsóknir í Lokakeppni Gulleggsins. 

Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi og hefur verið haldin árlega síðan 2008 af KLAK – Icelandic Startups. Keppnin er opin öllum, jafnt hugmyndasmiðum sem áhugafólki um nýsköpun, og hefur í gegnum árin reynst mikilvægur stökkpallur fyrir ný fyrirtæki og frumkvöðla á Íslandi.

Lokakeppni Gulleggsins fer fram 26. febrúar í hátíðarsal Grósku og verður keppninni streymt í beinni útsendingu á Vísir.is

Þau tíu teymi sem keppa um Gulleggið 2026 eru eftirfarandi: 

Affineva

Markmið Affineva er að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.

Araxni

Líftækniframleitt köngulóarsilki fyrir sjávarútveg, textíl og fleira. Vefjum nýja framtíð – úr silki ekki plasti.

Dýragáttin

Dýragáttin er eins og Heilsuvera fyrir dýr. Þar er hægt að finna allar upplýsingar um bólusetningar, örmerkingar, dýralæknaheimsóknir og annað sem tengist dýrunum okkar.

E-Lísa

E-Lísa dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og tryggir að borholur skili áreiðanlegum og fyrirsjáanlegum afköstum.

IORDEN

Hagkvæmur og sjálfvirkur gæðastjóri sem gerir smærri matvælaframleiðendum kleift að vera með allt IORDEN.

Le Bát

Afhendum sjávargögn á sjálfbæran máta

Norrstone

Norrstone – Stafrænt vistkerfi fyrir vottun, tryggð viðskiptavina, tryggingar og endursölu skartgripa.

Ókind

Ókind notar líftækni til að þróa nýtt efni úr íslenskri ull.

Replay! The Musical

Replay! The Musical er söngleikja-og hryntölvuleikur þar sem þú, leikmaðurinn, ferð með aðalhlutverkið.

STRUX

Markmið STRUX er að einfalda og hraða ferli byggingarleyfa.

Ókind

Ókind notar líftækni til að þróa nýtt efni úr íslenskri ull.

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.