Hringiða býður á kynningarviðburð í Grósku!
Dagsetning: 05. febrúar
Tími: 12:00 – 13:00
Staðsetning: Gróska, hugmyndahús
Hringiða er viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir, keyrður af KLAK – Icelandic Startups.
Hlutverk hraðalsins er að stuðla að því að á Íslandi dafni öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi. Markmið hraðalsins er jafnframt að þátttakendur verði í lokin í stakk búin að sækja um græna styrki bæði hérlendis og erlendis. ![]()
Verkefnateymi KLAK mun kynna fyrirkomulag Hringiðu í ár ásamt því að stofnendur Sea Growth og E1 munu koma og segja frá þeirra reynslu af hraðlinum.
Einnig verður boðið upp á léttan hádegisverð.
Hægt er að kynna sér Hringiðu betur á klak.is/hringida
Við hlökkum til að sjá þig!