Office hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað 30 mínútna fundi með reyndum sérfræðingum úr hópi mentora eða frá samstarfsaðilum KLAK VMS, sér að kostnaðarlausu. Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra. Dæmi um efni eru lagaleg málefni, hugverkaréttur og mannauðsmál.
Þann 17. febrúar n.k. munu sérfræðingar frá KPMG bjóða upp á Office Hours fundi í Grósku.
KPMG hefur í meira en áratug verið traustur bakhjarl nýsköpunarfyrirtækja og virkur þátttakandi í uppbyggingu nýsköpunarumhverfisins á Íslandi.
KPMG veitir nýsköpunarfyrirtækjum, fjárfestum og öðrum sem tengjast nýsköpun fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði endurskoðunar og reikningsskila, lögfræði og skattamála auk ráðgjafaþjónustu. Jafnframt á KPMG í traustu samstarfi við bókhalds- og launaþjónustu ECIT.
Þátttakendur fá tölvupóst með skráningarhlekk ✉️
Ef þú fékkst ekki póst en vilt láta bæta þér á listann máttu gjarnan hafa samband við okkur í [email protected] 🙏