KLAK – Icelandic Startups og Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd HÍ kynna vísindaferð Gulleggsins!
Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni landsins, verður kynnt ásamt því að spennandi fyrirtæki úr hópi bakhjarla Gulleggsins verða á svæðinu og bjóða upp á spjall.
Vísindaferðin er opin öllum háskólanemum og verða drykkir í boði frá CCEP á meðan birgðir endast. ![]()
Engin önnur en Alaska1867 mun koma fram og halda uppi stemningunni í vísindaferðinni. ![]()
Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi og fer fram í febrúar. Hefur þú áhuga á nýsköpun, kraumar í þér viðskiptahugmynd, eða langar þig að kynnast frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi? ![]()
Staðsetning: Gróska
Dagsetning: 16. janúar 2026
Tími: 17:00 – 20:00
Skráning fer fram hér:
https://innovit.wufoo.com/forms/w13mmgli1hr4uy3/
Hlökkum til að sjá ykkur!
—
Það er einnig búið að opna fyrir skráningar í Gulleggið 2026! Skráðu þig hér: https://apply.younoodle.com/round/gulleggid_2026