KLAK – Icelandic Startups og Gróska hafa undirritað samstarfssamning um viðskiptahraðalinn Startup SuperNova sem gildir til ársins 2027. Með samningnum verður Gróska áfram heimili hraðalsins og styður þannig við eitt af lykilverkefnum íslensks nýsköpunarumhverfis.
Startup SuperNova er sex vikna viðskiptahraðall sem rekinn er af KLAK – Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Huawei og nú með stuðningi frá Grósku. Markmið hraðalsins er að styðja við metnaðarfull frumkvöðlateymi við að þróa lausnir með vaxtarmöguleika á alþjóðlegum mörkuðum.. Á hverju ári eru tíu teymi valin til þátttöku í hraðlinum þar sem þau fá aðgang að markvissri fræðslu, vinnustofum, sérfræðiráðgjöf og tengslaneti fjárfesta og atvinnulífs. Þátttakendur njóta jafnframt góðs af KLAK Venture Mentor Service (VMS), gagnreyndu mentorakerfi sem byggir á fyrirmynd MIT-háskóla og tengir hvert teymi við sérhæft ráðgjafaráð skipað þremur reyndum mentorum.
Gróska hefur um árabil verið mikilvægur samstarfsaðili KLAK og vettvangur fyrir fjölmörg verkefni sem styðja við frumkvöðla og nýsköpun. Með nýjum samningi verður Gróska áfram heimili helstu viðburða Startup SuperNova, allt frá Superclass Startup SuperNova til lokadags hraðalsins þar sem teymin kynna lausnir sínar fyrir fjárfestum, atvinnulífi og öðrum lykilaðilum.
„Öflugt stuðningsumhverfi skiptir frumkvöðla miklu máli. Gróska hefur reynst einstakur vettvangur þar sem þátttakendur geta unnið að hugmyndum sínum, byggt upp tengslanet og tengst öflugu samfélagi frumkvöðla og fyrirtækja,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK. „Við erum afar ánægð með að halda þessu samstarfi áfram og skapa þannig enn sterkari umgjörð utan um næstu kynslóð nýsköpunarfyrirtækja.“
Undir þetta tekur Pétur Rúnar Heimisson, markaðs- og þjónustustjóri Heima, eiganda og rekstraraðila Grósku, sem segir:
„Við hjá Heimum erum stolt af því að Gróska verði áfram heimili Startup SuperNova. Frumkvöðlar og nýsköpunarfyrirtæki gegna lykilhlutverki í framtíðarsköpun íslensks atvinnulífs og því skiptir máli að þau hafi aðgang að öflugu umhverfi, sterkum tengslum og samfélagi sem styður við vöxt og þróun. Samstarfið við KLAK fellur vel að þeirri sýn okkar að Gróska sé vettvangur þar sem sprotafyrirtæki og rótgróin fyrirtæki koma saman, deila reynslu og þekkingu, mynda ný tengsl og skapa verðmæti til framtíðar,“ segir Pétur Rúnar Heimisson, markaðs- og þjónustustjóri Heima, eiganda og rekstraraðila Grósku.
Með áframhaldandi samstarfi KLAK og Grósku styrkist enn frekar það vistkerfi sem styður við frumkvöðla á Íslandi. Samningurinn skapar traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu Startup SuperNova og tryggir að þátttakendur njóti áfram aðstöðu og samfélags sem hefur reynst mikilvægur þáttur í árangri hraðalsins.