Fjöldi nemenda lagði leið sína í Grósku föstudaginn 16. október þegar KLAK bauð til vísindaferðar Gulleggsins. Húsið fylltist af lífi, nýsköpun og góðri stemningu þar sem nemendur fengu tækifæri til að kynnast fyrirtækjum, taka þátt í hugmyndakeppni og njóta fjölbreyttrar dagskrár.
Vísindaferðin fór fram á milli klukkan 17:00 og 20:00 og var Grósku breytt í sannkallaðan suðupott nýsköpunar og skemmtunar. Fyrstu gestir kvöldsins fengu gjafapoka með glaðningi frá bakhjörlum Gulleggsins áður en dagskráin hófst í sal fullum af áhugasömum háskólanemum.

Kvöldið hófst á stuttum kynningum þar sem Ásta Sóllilja, framkvæmdastjóri KLAK, og Anna, verkefnastjóri Gulleggsins, tóku til máls. Í kjölfarið kynntu Urður Hafþórsdóttir og Aron Ás Kjartansson starfsemi KPMG og Margeir Haraldsson Arndal, einn stofnenda sprotafyrirtækisins IORDEN, sagði frá vegferð fyrirtækisins eftir þátttöku í Gullegginu árið 2026.

Í kjölfarið var opnað fyrir skráningar í Gulleggið 2027 – stærstu frumkvöðlakeppni landsins!
Nýsköpun, hugmyndir og fjör á þremur hæðum
Að kynningum loknum tók við fjölbreytt dagskrá um alla Grósku. Á fyrstu hæð hússins höfðu bakhjarlar og samstarfsaðilar komið sér fyrir með kynningarbása þar sem nemendur gátu kynnt sér starfsemi þeirra, spurt spurninga og myndað verðmæt tengsl við atvinnulífið.
Þar mátti meðal annars hitta fulltrúa Orkusölunnar, Crowberry Capital, KPMG, Brunns Ventures, Landsbankans, Hugverkastofunnar, Sprota – nýsköpunarnefndar HR og KLAK – Icelandic Startups.
Einn af hápunktum kvöldsins var hugmyndakeppni KLAK og Landsbankans, þar sem nemendur fengu tækifæri til að láta hugmyndir sínar skína. Í lok kvöldsins var ein hugmynd valin og hlaut hún glæsileg verðlaun: 50.000 Aukakrónur í boði Landsbankans. Sigurvegari hennar var hugmyndasmiðurinn María Dís Gústafsdóttir með hugmynd að skartgrip sem inniheldur neyðarhnapp sem gefur frá sér hljóð og sendir staðsetningu á lögrelguna.

Á neðstu hæð Grósku sá Sproti, nýsköpunarnefnd Háskólans í Reykjavík, um fjörið. Þar gátu gestir meðal annars spreytt sig í beer pong, snúið lukkuhjóli og tekið þátt í pílukeppni. Fyrir þau sem vildu aðeins rólegri stemningu var einnig boðið upp á notalega setustofu á annarri hæð þar sem hægt var að spjalla og njóta góðra veitinga í skemmtilegum félagsskap.
Tónlistaratriði batt endahnútinn á frábært kvöld
Það vantaði heldur ekki tónlistina! Kvöldinu lauk með kraftmiklu tónlistaratriði frá UB og Tatjönu sem sáu til þess að gestir kvöddu Grósku í góðu skapi.
Vísindaferð Gulleggsins var frábært tækifæri til að leiða saman nemendur, atvinnulíf og nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Kvöldið sýndi vel hversu mikill kraftur og áhugi býr í næstu kynslóð frumkvöðla.
KLAK færir öllum gestum, bakhjörlum og samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir þátttökuna og fyrir að gera kvöldið jafn eftirminnilegt og raun bar vitni. Við hlökkum til að sjá hvaða hugmyndir og tækifæri spretta upp úr þessum skemmtilegu kynnum!
















