Vaxtarrými fyrir styrkþega Tækniþróunarsjóðs

Dafna samanstendur af vinnustofum og mentoraþjónustu fyrir Sprota- og Vaxtarstyrkþega í samstarfi við Tækniþróunarsjóð.

Vinnustofur og mentoraþjónusta

Dafna er fjögurra mánaða vaxtarrými (e. incubator) sem KLAK rekur í samstarfi við Tækniþróunarsjóð. Vaxtarrýmið er ætlað frumkvöðlum sem hafa hlotið Sprota- eða Vaxtarstyrk frá sjóðnum.

Dagskráin samanstendur af gagnvirkum vinnustofum og sérhæfðri mentoraþjónustu KLAK VMS. Þátttakendur fá fræðslu um uppbyggingu sprotafyrirtækja og tengjast reyndum mentorum, sérfræðingum og fjárfestum, þar á meðal englafjárfestum og vísisjóðum.

Markmið Dafna er að styðja þátttakendur og auka líkur á velgengni sprotafyrirtækja þeirra.

Sótt er um styrki á vef Tækniþróunarsjóðs hér https://island.is/v/taeknithrounarsjodur

Fyrirkomulag

Teymi sem hljóta Sprota- eða Vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði fá boð um að taka þátt í Dafna. 

Hvenær er Dafna?

Vorúthlutun

Haustúthlutun

Ágúst – desember

Febrúar – júní

Hvernig virkar Dafna?

  • Vinnustofur
    Tveggja daga gagnvirkar vinnustofur í lok hvers mánaðar með fræðslu og verkfærum fyrir uppbyggingu sprotafyrirtækja.
  • Raunhæf verkefni
    Á milli vinnustofa vinna teymin hagnýt verkefni sem aðstoða þau við að ná framgangi
  • Mentorafundir
    Styrkþegar hitta sitt mentorateymi fjórum sinnum á tímabilinu, á 90 mínútna fundum. Nánari upplýsingar um mentorakerfi KLAK VMS má finna hér ( https://klak.is/vms/ )

Lokadagur

Allir Dafna hópar ljúka prógramminu með kynningum á verkefni sínu fyrir framan stjórn Tækniþróunarsjóðs, fjárfesta, hagaðila úr nýsköpunarumhverfinu og gesti. 

Um Dafna

Dafna hóf göngu sína árið 2021 sem tilraunaverkefni KLAK og Tækniþróunarsjóðs og var þá vikulangt prógram fyrir um 20 teymi sem höfðu hlotið Sprotastyrk frá sjóðnum. Teymin sóttu vinnusmiðjur meðal annars um viðskiptaáætlanir, markaðssetningu og vöruþróun. Hvert teymi fékk þá einn mentor og hitti hann tvisvar sinnum í 40 mínútur.

 

Fljótt kom í ljós að þörfin var meiri og tækifærin ótalmörg. Árið 2022 var Dafna opnað Vaxtarstyrkþegum líka og umfangið tvöfaldað. Vikulangt námskeið varð að fjögurra mánaða vaxtarrými. Einn mentor varð að heilu mentorateymi, skipulögðu í samstarfi við MIT Venture Mentoring Service.

 

Í dag nær Dafna til allt að 80 fyrirtækja á ári. Markmiðið er enn það sama og í upphafi: að gefa efnilegum sprotum gott veganesti og auka líkur á árangri þeirra.

Tengiliðir

Ísey Dísa Hávarsdóttir

Verkefnastjóri

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.