Frá líftækni til heimaþjónustu – níu teymi taka þátt  í KLAK health 2026

Viðskiptahraðalinn KLAK health hófst þann 21. október en þetta er í annað sinn sem KLAK – Icelandic Startups keyrir hraðalinn. Níu framsækin teymi sem sem vinna að fjölbreyttum heilsutæknilausnum voru valin til þátttöku í ár. Næstu fimm vikurnar vinna þau að því að þróa lausnir sínar áfram undir leiðsögn sérfræðinga. 

Í hraðlinum fá sprotarnir stuðning við allt sem viðkemur því að stofna og reka sprotafyrirtæki í heilsugeiranum. Þróun viðskiptalíkans, reglugerðarkröfur í  heilsutækni, hugverkaréttur og fjármögnunarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja eru meðal viðfangsefna sem teymin munu fást við. Sprotarnir jafnframt móta áætlun um næstu skref til að ná í greiðandi viðskiptavini eða samstarfsaðila. Að hraðlinum loknum kynna þau lausnir sínar fyrir fjárfestum og lykilaðilum úr heilsutækni- og nýsköpunarumhverfinu. 

Þátttakendur í ár vinna að fjölbreyttum lausnum, allt frá lækningatækjum og líftækni til stafrænna heilsulausna og neytendalausna. Í hópnum er einnig opinbert nýsköpunarverkefni sem þróar sjúkrahúsmeðferð sem er veitt heima fyrir. Sum verkefnanna eru á frumstigi en önnur eru komin vel á veg. 

Sprotafyrirtækin sem taka þátt í KLAK health ár:

Affineva þróar kitt til að einangra og hreinsa utanfrumubólur úr lífsýnum og greina þannig möguleg lífmerki. Kittið er fyrst hugsað fyrir rannsóknarmarkaðinn en á síðar að verða grunnur að klínískum greiningarprófum. 

Eitrunarvísir er stafrænt tól sem hjálpar starfsfólki eitrunarmiðstöðva að meta alvarleika mála fljótt og örugglega. Frumgerð er tilbúin og teymið vinnur nú að regluverki um lækningatæki og ábyrgri notkun gervigreindar.

Flugstjóraaðferðin er vefapp sem tengir saman heimili, skóla og heilbrigðisþjónustu í kringum daglega líðan barna með taugaþroskaraskanir, til dæmis ADHD, einhverfu eða kvíða. Markmiðið er að auðvelda fullorðnum og barninu sjálfu að lesa í líðan þess og gefa læknum betri yfirsýn.

Heimaspítali Suðurlands veitir sjúkrahúsmeðferð heima fyrir. Markmiðið er að útvíkka þjónustuna og þróa líkan sem nýst getur við að koma á fót heimaspítölum í dreifbýli.

Hilda Health er app, þróað af læknum, sem hjálpar foreldrum að undirbúa læknisheimsókn barns með spurningalistum og skráningu einkenna. Niðurstöðurnar eru teknar saman fyrir lækninn svo heimsóknin nýtist sem best.

Logn þróar létt og aðgengilegt hljóðtæki til daglegrar notkunar fyrir fólk með eyrnasuð. Verkefnið er á frumstigi og teymið vinnur að regluverki og prófunum með notendum.

Minamo hefur þróað sílíkonhúð sem kemur í veg fyrir að sýklar festist á lækningatækjum og dregur þannig úr sýkingum án sýklalyfja. Fyrirtækið á rætur sínar í Háskóla Íslands og leitar nú samstarfs við framleiðendur lækningatækja.

Mín Skimun er app sem hjálpar konum að halda utan um skimanir fyrir brjósta- og leghálskrabbameini, með áminningum og fræðslu.

WaveResilience er vettvangur fyrir HRV-lífendurgjöf á vinnustöðum sem sameinar mælitæki, vefapp og þjálfun. Lausnin byggir á rannsóknum og teymið vinnur að því að gera hana að skalanlegri vöru fyrir fyrirtæki.

„Hópurinn í ár er fjölbreyttur og teymin eru öll að takast á við raunverulegar áskoranir. Við hlökkum til að styðja við þau næstu fimm vikurnar og fylgjast með þeim vaxa,“ segir Haraldur Bergvinsson, verkefnastjóri hjá KLAK – Icelandic Startups. 

Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, Heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össur, Nox Medical, Frumtök og Lyfja. 

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.