Kynnumst betur – Morgunkaffi

Kynnumst betur yfir morgunkaffi

Fimmtudaginn 29. október kl. 10:00–11:30 verður boðið til morgunkaffis hjá Íslandsstofu í Grósku. Þar geta frumkvöðlar og fyrirtæki kynnt sér þjónustu, stuðning og tækifæri hjá aðilunum sem standa að Nýsköpunarþingi, ásamt KLAK og IceBAN.

Ísey, verkefnastjóri KLAK health, verður með erindi fyrir hönd KLAK. Að stuttum kynningum loknum gefst tími til að spyrja spurninga, ræða hugmyndir og fá ráðgjöf. Við hvetjum þig til að mæta og kanna hvaða stuðningur gæti nýst þér í næstu skrefum.

Nánari upplýsingar um viðburðinn

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.