Miðvikudaginn 11. nóvember fór viðburðurinn „Tökum púlsinn á teymunum“ fram í Grósku þar sem þátttakendur í viðskiptahraðlinum KLAK health kynntu verkefni sín í fyrsta sinn. Fjöldi lykilaðila úr nýsköpunar- og heilbrigðisgeiranum kom saman til að fylgjast með kynningunum og kynnast teymunum betur.
Nú þegar hraðallinn er hálfnaður hafa teymin fengið fræðslu um regluverk og tæknilegar kröfur sem gerðar eru til fyrirtækja í heilsutækni. Á fyrstu vikum hraðalsins hafa þau einnig fengið endurgjöf á þróun verkefna sinna frá reyndum frumkvöðlum, sérfræðingum og fjárfestum. Viðburðurinn gaf teymunum tækifæri til að kynna verkefni sín og segja frá því hvernig þau hafa þróast á undanförnum vikum.
Í ár taka níu fjölbreytt teymi þátt í KLAK health sem vinna að lausnum á sviði líftækni, lækningatækja og stafrænnar heilsutækni, auk nýrra leiða til að veita heilbrigðisþjónustu. Verkefnin snúa meðal annars að bættri greiningu sjúkdóma, forvörnum, geðheilbrigði og auknu aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
Nú tekur við seinni helmingur hraðalsins þar sem áhersla verður lögð á markaðsfræði, sölu og fjármögnun. Hraðlinum lýkur í lok nóvember með fjárfestakynningum þar sem teymin fá tækifæri til að kynna lausnir sínar fyrir fjárfestum og öðrum lykilaðilum úr atvinnulífinu.
Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össur, Nox Medical, Frumtök og Lyfja.