fbpx

Áhugasamir frumkvöðlar kynntu sér Hringiðu+

Kynningarviðburður Hringiðu+ 2025 fór fram í Grósku í vikunni en öllum áhugasömum var boðið að koma, kynna sér hraðalinn og ræða við starfsfólk KLAK – Icelandic startups og fulltrúa úr stýrihóp um möguleika á þátttöku.

Ísey Dísa Hávarsdóttir, verkefnastjóri Hringiðu, steig fyrst á svið og kynnti fyrirkomulag og áherslur hraðalsins árið 2025. Sú breyting verður gerð á fyrirkomulaginu frá því í fyrra að í ár er hraðallinn sérstaklega miðaður fyrir lengra komnar viðskiptahugmyndir eða lausnir sem hafa að lágmarki náð þroskastigi 4 á TRL mælikvarðanum. Þroskastig 4 felur í sér að lausnin eða varan sem unnið er að hefur verið prófuð og sannreynd í „vernduðu“ umhverfi. Vegna þessarar áherslubreytingar gengur hraðallinn undir nafninu Hringiða+ í ár. 

Magnús Ingi Óskarsson, forstöðumaður KLAK VMS, kynnti svo mentoraþjóustuna sem allir þátttakendur í viðskiptahröðlum á vegum KLAK – Icelandic startups fá aðgang að. Að lokum sagði Eyrún Linnet, stofnandi og tæknistjóri SnerpaPower frá sínu fyrirtæki og þeim tækifærum sem þátttaka í Hringiðu+ árið 2022 opnaði fyrir þeirra starfsemi. Erindið var virkilega áhugavert og skemmtilegt enda árangur SnerpaPower undanfarin ár eftirtektarverður. 

Eftir þetta gafst gestum tækifæri á að spyrja spurninga og spjalla sín á milli á meðan þeir nutu léttra veitinga. 

Kynningarglærur um Hringiðu+ eru aðgengilegar hér: Hringiða+ 2025: Kynning

Opið er fyrir umsóknir í Hringiðu+ til og með 9. Febrúar og er öllum áhugasömum bent á að sækja um hér: Sækja um í Hringiðu

Hringiða+ er sex vikna viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir sem hefst þann 17. mars og lýkur með glæsilegum fjárfestadegi þann 7. Maí. Tekið er tveggja vikna hlé um páskana. Hraðallinn felur í sér fjölbreyttar vinnustofur, fyrirlestra og viðbuði en markmiðið með dagskránni er að stuðla að því að á Íslandi dafni öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi. Markmið hraðalsins er jafnframt að þátttakendur verði í lokin í stakk búin að sækja um græna styrki bæði hérlendis og erlendis.

Víðir Björnsson ljósmyndari var á staðnum og tók myndir af viðstöddum. 

is_ISÍslenska